Fréttir

Bíll valt við Akureyri í morgun

Bíll valt út af Hlíðarfjallsvegi við Akureyri í morgun. Ökumaður og farþegu voru fluttir til aðhlynningar á slysadeild með minniháttar áverka.

Það frysti norðanlands í nótt og samkvæmt upplýsingum mbl.is má líklega rekja slysið til þess. Lögreglumaður sem mbl.is ræddi við beindi þeim tilmælum til vagfarenda að hafa í huga að hálka gæti myndast á fjallvegum fyrir norðan.