„Rasismi lifir góðu lífi á Íslandi og virðist jafnvel vera samþykktur af samfélaginu. Við sem samfélag þurfum að taka afstöðu gegn hatri og fordómum til að skapa betra samfélag fyrir komandi kynslóðir.“
Þetta segir Natalie Ouellette í pistli sem birtist í Reykjavík Grapevine. Natalie flutti til Íslands fyrir fimm árum síðan. Í grein sinni segir hún að fordómar í íslensku samfélagi komi henni sífellt á óvart.
Þegar Natalie fór í Árbæjarlaug með börnin sín um daginn sá hún tvo einstaklinga með mikið magn haturs- og fordómafullra húðflúra. Húðflúr á borð við hakakross og fleiri tákn öfgahópa sem telja hvíta kynstofninn öðrum æðri.
„Þegar ég spurði starfsmann um hvaða reglur giltu um gesti með rasísk húðflúr var svarið: Það eru engar reglur um það sem ég þekki til. Ísland er lítið land og er bara svolítið rasískt.“
Natalie var ekki ánægð með þetta svar og sendi því sömu spurningu til borgaryfirvalda. Í svari frá mannréttindaskrifstofu var sagt að húðflúr teldust til tjáningarfrelsis einstaklings og því væru engar reglur gegn þeim.
Þetta svar fannst henni undarlegt. „Ættu tákn og merki rasisma og gyðingahaturs ekki að teljast til hatursorðræðu?“
„Ég hef því komist að þeirri leiðinda niðurstöður að á Íslandi er rasismi hreinlega samþykktur.“
Natalie telur þetta vera samfélagslegt vandamál og því þurfi þjóðin að taka höndum saman.
„Nú er nóg komið. Hættið að afsaka íslenska rasista og takið afstöðu gegn því sem þið vitið að er rangt. Hættið þessu tvöfalda siðgæði gegn þeim einstaklingum sem hingað eru komnir í leit af betra lífi. Það að við búum á litlu og einangruðu landi þýðir ekki að við getum ekki gert breytingar. Þær aðgerðir til að stuðla að umburðarlyndi og taka á hatri munu hafa gífurleg áhrif á samfélagið og komandi kynslóðir munu þakka okkur.“
Þetta er ekki í fyrsta skiptið í þessari viku sem athygli er vakin á fordómum á Íslandi. Starfsmaður Krónunnar, sem er að erlendu bergi brotinn og dökkur á hörund, varð fyrir árás í vinnunni þegar kúnni vék sér að honum og jós yfir hann hatursfullum svívirðingum. Eiginkona hans vakti athygli á atvikinu á Facebook í færslu sem hefur vakið mikla athygli. Þar segir hún meðal annars:
„Já gott fólk, þetta gerðist hér á Íslandi, þetta herrans ár 2019. Rasisminn lifir góðu lífi hér á landi.“