fbpx
Föstudagur 26.apríl 2024
Fréttir

Guðmundur Ingi fór í rándýra lúxusferð í boði skattgreiðenda

Ritstjórn DV
Þriðjudaginn 18. september 2018 15:35

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Guðmundur Ingi Kristinsson, þingmaður Flokk Fólksins, gagnrýnir harðlega bruðl á vegum Alþingis vegna utanlandsferðar til Grænlands. Guðmundur Ingi fór þangað til að vera viðstaddur velferðarnefndarfund Norðurlandaráðs. Hann gagnrýndi lúxusinn harðlega á Alþingi í dag

„Ég var að koma úr minni fyrstu utanlandsferð á vegum þingsins, af velferðarnefndarfundi Norðurlandaráðs í Nuuk í Grænlandi. Ég spyr mig eftir þessa ferð hverju hún skilar og í hvaða tilgangi hún hafi verið farin. Ég dáist að þeim Grænlendingum sem búa þar á þessum kletti sem er með ís ofan á og með ótrúlegri seiglu hafa lifað á þeim stað. En ég verð að gera athugasemd við það að ég gisti á dýrasta hóteli sem ég hef nokkurn tímann gist á á ævinni. Það er meira en tvöfalt dýrara en nokkurt lúxushótel sem ég hef komist inn á. Var það samt ekki dýrt í þeim samanburði. Ég spyr mig hvers vegna í ósköpunum var verið að senda tíu manns, sjö þingmenn og aðstoðarfólk, á þessa ráðstefnu sem var eingöngu í þeim tilgangi að samþykkja einhverjar áður gerðar ályktanir eða reyna að gera einhverjar orðalagsbreytingar,“ sagði Guðmundur Ingi.

Hann spyr hvort þessi peningaeyðsla sé gegnumgangandi á Alþingi og vísar máli sínu til stuðnings til hátíðarfundi Alþingis á Þingvöllum. „Ég segi bara: Guði sé lof, þetta voru á milli 20 og 30 álit sem var farið í gegnum en á bak við þessi álit voru um 250 blaðsíður. Ég spyr: Til hvers í ósköpunum erum við að þessu? Ég spyr líka, ef ég er að borga þarna meira en helmingi dýrara hótel en þyrfti að vera og við erum að borga helmingi meira fyrir Þingvelli og hátíðina þar en þyrfti: Er þetta gegnumgangandi á þinginu? Þurfum við ekki að fara að endurskoða hlutina? Á sama tíma er hver fréttatíminn af öðrum þar sem börn koma fram og fá ekki þjónustu vegna þess að laga þarf í þeim góminn, það þarf að laga í þeim tennurnar. Á sama tíma erum við að setja inn í fjárlög hungurlús, 1% hækkun á persónuafslætti aukalega, 500 kall. Það sýnir sig að 1% lækkun á 37% þrepaskatti hefði skilað 14 milljörðum til að nota í persónuafsláttinn og það hefði skilað þeim sem lægst eru settir 15.000 kr. á mánuði en ekki 500 kr,“ sagði Guðmundur Ingi.

Að lokum sló hann á létta strengi: „Ég spyr og vil bara fá upplýsingar um það hvort við eigum að fara að taka það saman hvort allar þessar utanlandsferðir og kostnaðurinn í kringum þær séu nauðsynlegar. Við eigum að kafa ofan í þetta. Að lokum vil ég segja: Þetta var rándýr ferð en það sem er undarlegast við hana og verður sennilega mest í minningunni haft er að hún var í boði Alþingis og það eina sem stendur sennilega upp úr er rándýr hálsbólga og kvef.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 21 klukkutímum

Mótmælin á Tenerife – Vill ekki ferðamenn með „allt-innifalið“ armbönd

Mótmælin á Tenerife – Vill ekki ferðamenn með „allt-innifalið“ armbönd
Fréttir
Í gær

Helga Þórisdóttir búin að ná meðmælendum

Helga Þórisdóttir búin að ná meðmælendum
Fréttir
Í gær

Brim fjárfestir í nýjasta kælibúnaði frá KAPP

Brim fjárfestir í nýjasta kælibúnaði frá KAPP
Fréttir
Í gær

Hefur þú stofnað bankareikning í Danmörku? Þá þarftu kannski að bregðast hratt við svo peningarnir þínir renni ekki í danska ríkiskassann

Hefur þú stofnað bankareikning í Danmörku? Þá þarftu kannski að bregðast hratt við svo peningarnir þínir renni ekki í danska ríkiskassann
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Mörg dæmi um að frændhygli, kunningsskapur og pólitísk fyrirgreiðsla ráði för – „Og svo spurði ég um spillingu“

Mörg dæmi um að frændhygli, kunningsskapur og pólitísk fyrirgreiðsla ráði för – „Og svo spurði ég um spillingu“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Spáir ekki dropa úr lofti í Reykjavík fyrr en í maí – Sumarið lítur sérstaklega vel út

Spáir ekki dropa úr lofti í Reykjavík fyrr en í maí – Sumarið lítur sérstaklega vel út
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Dómur kveðinn upp yfir manni sem réðst á starfsmann Landspítalans

Dómur kveðinn upp yfir manni sem réðst á starfsmann Landspítalans
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Segir það verða sannkallaða martröð fyrir Rússa ef þeir ráðast inn í stórborgina Kharkiv

Segir það verða sannkallaða martröð fyrir Rússa ef þeir ráðast inn í stórborgina Kharkiv