fbpx
Þriðjudagur 03.júní 2025
Fréttir

Felix fordæmir múslimaríki: „Þetta pakk sem stendur fyrir þessum ofsóknum … mun að öllum líkindum brenna í helviti“

Auður Ösp
Þriðjudaginn 3. október 2017 12:58

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Það þarf að rífa þessi ríki inn í nútímann og beita þau einhverjum þeim þvingunum að þau láti af þessu ofbeldi gegn þegnunum,“ segir Felix Bergsson leikari, útvarpsmaður og söngvari og vísar þar í nýlegar fréttir af ofsóknum yfirvalda í Egyptalandi á hendur samkynhneigðum. Tugir einstaklinga hafa verið handteknir þar í landi undanfarna daga fyrir að hafa haldið á fána í regnbogalitum á tónleikum. Kveðst Felix vera bæði sorgmæddur og reiður vegna málsins.

Líbanska popphljómsveitin Mashrou Leila Mashrou’ Leila hélt tónleika í Kaíró þann 22.september síðastliðinn. Á tónleikunum mátti sjá áhorfendur veifa regnbogafánanum sem er tákn mannréttindabaráttu samkynhneigðra en söngvari hljómsveitarinnar er samkynhneigður.

Í kjölfarið var ljósmyndum og myndskeiðum af tónleikunum lekið á netið og síðan þá hafa 32 karlar og ein kona verið handtekin fyrir að „upphefja fjölbreytta kynhneigð.“

Fram kemur í frétt BBC að yfirvöld hafi látið framkvæma endaþarmsskoðun á minnst fimm mannanna til að ganga úr skugga um hvort þeir hafi stundað samkynhneigt kynlíf.

Samkynhneigð er ekki refsiverð samkvæmt egypskum lögum en yfirvöld hafa reglulega handtekið fólk sem hefur staðið í réttindabaráttu samkynhneigðra. Hafa þeir einstaklingar þá verið sakaðir um „siðspillingu“, „siðleysi“ og „guðlast“.

„Sorglegra en tárum taki“

Í opinni færslu á facebook vísar Felix í umrædda frétt BBC um málið.

„Framkoma múslimaríkja gagnvart LGBTQ samfélaginu er algjörlega óþolandi. Hér er glæpurinn sá að halda á regnbogafána á tónleikum. Þetta pakk sem stendur fyrir þessum ofsóknum á grundvelli versta stjórntækis sem manneskjan hefur fundið upp, trúarbragða, mun auðvitað tapa að lokum og að öllum líkindum brenna í helvíti en þjáningar þeirra sem þurfa að þola þetta ógeðslega ofríki enn í dag eru sorglegri en tárum taki.

Það þarf að rífa þessi ríki inn í nútímann og beita þau einhverjum þeim þvingunum að þau láti af þessu ofbeldi gegn þegnunum. Á meðan við bíðum eftir því deyja bræður okkar og systur,“

ritar Felix en ljóst er að honum er afar heitt í hamsi:

„Ég er sorgmæddur og reiður. Já ég er brjálaður!“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 23 klukkutímum

Grunaður um stórfelld brot í nánu sambandi gegn konu og 2 dætrum þeirra – Neitaði að undirrita Selfossleið og nálgunarbann staðfest

Grunaður um stórfelld brot í nánu sambandi gegn konu og 2 dætrum þeirra – Neitaði að undirrita Selfossleið og nálgunarbann staðfest
Fréttir
Fyrir 23 klukkutímum

Bíll hafnaði á hvolfi eftir harðan árekstur

Bíll hafnaði á hvolfi eftir harðan árekstur
Fréttir
Í gær

Höskuldur rakst á vegg í Héraðsdómi – Áminningin stendur óhögguð

Höskuldur rakst á vegg í Héraðsdómi – Áminningin stendur óhögguð
Fréttir
Í gær

Íslendingar á Spáni kvarta undan undarlegum betlpóstum frá fyrrverandi ræðismanni – „Kærastan mín var rænd á flugvellinum“

Íslendingar á Spáni kvarta undan undarlegum betlpóstum frá fyrrverandi ræðismanni – „Kærastan mín var rænd á flugvellinum“
Fréttir
Í gær

„Að fjöldi fólks hafi mætt á túnblettinn og klappað fyrir þessu fjandsamlega samsærissulli Binna í treyju merktri AH er í senn bæði sorglegt og skelfilegt“

„Að fjöldi fólks hafi mætt á túnblettinn og klappað fyrir þessu fjandsamlega samsærissulli Binna í treyju merktri AH er í senn bæði sorglegt og skelfilegt“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Fann dularfullt flöskuskeyti í Viðey – Sagt vera frá árinu 1993

Fann dularfullt flöskuskeyti í Viðey – Sagt vera frá árinu 1993