Biðst aftur afsökunar á Facebook – Biður fólk að deila færslunni
Magnús Jónsson, fyrrverandi forstjóri Atorku, hefur beðið Þorstein Vilhelmsson opinberlega afsökunar vegna ummæla sem hann lét falla á Facebook. Þorsteinn hefur verið umsvifamikill í íslensku viðskiptalífi og átti stóran hlut í Samherja. Hann var einnig stærsti eigandi Atorku. Vísir greindi frá því í byrjun árs að Atorku hefði verið formlega slitið þann 9. desember 2016 og lauk þá 26 ára sögu félags sem var lengi eitt umsvifamesta fjárfestingarfélag landsins. Magnús er fyrrverandi tengdasonur Þorsteins.
Magnús Jónsson hefur áður beðist afsökunar á ummælum sem hann hefur látið falla á Facebook. Í byrjun árs greindi Vísir frá því að Magnús hefði dregið til baka ummæli um hæstaréttardómarana Benedikt Bogason og Karl Axelsson. Einkamál tengt Magnúsi og fyrrverandi konu hans hafði farið fyrir dóm og var Magnús ósáttur við niðurstöðuna. Eftir að Magnús baðst afsökunar létu dómararnir málin niður falla. Þorsteinn ákvað svo að leita réttar síns eftir að Magnús tjáði sig um hann á Facebook-síðu sinni. Magnús skrifaði í júlí 2016:
„… Eða stálu þessu frá föður sínum í formi skipstjórakvóta líkt og Þorsteinn Vilhelmsson „fjárfestingasnillingur“ gerði þegar hann stal kvótanum undan Vilhelmi föður sínum framkvæmdastjóra Útgerðarfélags Akureyrar.“
Fannst Þorsteini vegið að æru sinni og starfsheiðri. Var Magnúsi gefið að birta afsökunarbeiðni á Facebook. Magnús hefur nú beðið Þorstein afsökunar. Magnús segir:
„Þann 23. júlí, birti ég færslu hér á Facebook, þar sem ég dróttaðist að æru Þorsteins Vihelmssonar. Sú háttsemi sem ég lýsti í færslunni átti sér aldrei stað og því voru umræddar ásakanir með öllu tilhæfulausar. Ég bið hér með Þorstein Vilhelmsson afsökunar á hinum tilhæfulausu ásökunum. Ég vil jafnframt biðja þá sem deildu færslunni með hinum tilhæfulausu ásökunum að deila jafnframt þessari afsökunarbeiðni.“
Magnús var forstjóri Atorku allt þar til í september 2009 en þá hafði fyrirtækið hlotið áframhaldandi heimild til greiðslustöðvunar. Meðal helstu eigna fyrirtækisins á þeim tíma var ráðandi eignarhlutur í Promens sem var ein stærsta plastverksmiðja heims. Atorka Group hafði tapað verulegum fjármunum í hruninu, en tapið árin 2008 og 2009 nam 56,4 milljörðum króna.