Árni Harðarson, stjórnarmaður og aðstoðarforstjóri samheitalyfjafyrirtækisins Alvogen er skattakóngur Íslands. Árni greiddi samtals 265.319.825 krónur í opinber gjöld samkvæmt álagningarskrá ríkisskattstjóra. Þetta segir í tilkynningu frá ríkisskattstjóra. Þar má finna lista yfir 20 hæstu gjaldendur.
Önnur þekkt nöfn á listanum eru Jakob Már Ásmundsson sem er fyrrum forstjóri Straums fjárfestingarbanka, Kristján Vilhjálmsson. Kristján Vilhelmsson, útgerðarmaður og einn eiganda Samherja. Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðargreiningar. Benedikt Sveinsson, fjárfestir og einn fyrirferðarmesti maður Engeyjarættarinnar. Ingibjörg Lind Karlsdóttir, dagskrárgerðarkona og Grímur Karl Sæmundsen, forstjóri Bláa Lónsins.
Þá vekur athygli að Guðbjörg Matthíasdóttir, útgerðarkona í Vestmanneyjum, er ekki á listanum.
Listinn í heild:
Árni Harðarson 265.319.825
Christopher M Perrin 200.033.697
Jakob Már Ásmundsson 193.218.736
Þórir Garðarsson 163.175.914
Sigurdór Sigurðsson 160.403.826
Óttar Pálsson 142.730.845
Valur Ragnarsson 133.059.910
Sigurður Reynir Harðarson 131.512.950
Kristján V Vilhelmsson 129.060.207
Andrew Sylvain Bernhardt 112.810.485
Jakob Óskar Sigurðsson 101.488.387
Þórlaug Guðmundsdóttir 100.992.418
Þorvaldur Ingvarsson 93.116.177
Egill Jónsson 86.244.009
Kári Stefánsson 84.516.529
Guðbjörg Edda Eggertsdóttir 83.537.457
Þuríður Ottesen 81.246.007
Benedikt Sveinsson 80.440.300
Ingibjörg Lind Karlsdóttir 80.290.404
Grímur Karl Sæmundsen 80.089.692