Það stefnir í spennandi slag um forsetaembættið. Guðni Th. Jóhannesson, sem mun að líkindum tilkynna formlega um framboð sitt í vikunni, mælist þannig með lítillega meira fylgi en Ólafur Ragnar ef valið stæði eingöngu milli þeirra tveggja, samkvæmt könnun Frjálsrar verslunar. Ólafur Ragnar hefur hins vegar yfirhöndina ef einnig er spurt um stuðning við Andra Snæ Magnússon.
Björn Bjarnason, fyrrverandi dómsmálaráðherra, segir á Facebook-síðu sinni að niðurstöðurnar sýni að Ólafur Ragnar hefði átt að ígrunda framboð sitt betur. „Tuttugu ára seta í háu embætti tryggir ekki endurkjör. Andri Snær Magnason og stuðningsmenn hans ráða hvort Ólafur Ragnar situr áfram.“