Sally Mustang, listakona, jógakennari og áhrifavaldur og maðurinn hennar Mitch Gobel, sem einnig er listamaður, hafa verið gagnrýnd fyrir að stunda kynlíf fyrir framan fimm mánaða gamalt barn sitt. The Sun segir frá.
Sally deildi mynd á Instagram síðu sinni þar sem hún sagði frá því að hún og maður hennar njóti ásta með son þeirra, Azure, í herberginu. Sally segir það náttúrulegt og spyr sig hvers vegna samfélagið segir þetta óásættanlegt. Fjölda foreldra misbauð orð Sally og fjarlægði hún myndina innan 12 klukkustunda.
Sally hefur svarað athugasemdum í Instagram-story og sagði hún að hún hafi ákveðið að fjarlægja myndina vegna þess að hún hefur fengið mikið að slæmri orku í gegnum hana.
Sally nefnir að þegar hún talar um „að njóta ásta“ sé hún ekki endilega að tala um kynlíf og allt sem því fylgir. Hún segir jafnframt að þegar Azure sé á staðnum er hann sofandi í hinum hluta rúmsins eða að leika sér á gólfteppinu á meðan þau eru í sófanum.
Sally talar iðulega um móðurhlutverkið á Instagram.