fbpx
Fimmtudagur 18.september 2025

Ferðin til Íslands breytti öllu: Fékk slopp í stærðinni XXL og ákvað að nú væri nóg komið

Guðrún Ósk Guðjónsdóttir
Fimmtudaginn 9. janúar 2020 13:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Kennarinn Amy Hodgson skammaðist sín svo mikið fyrir stærð sína þegar hún var í fríi á Íslandi að hún neitaði að vera á myndum með kærasta sínum. Hún hefur síðan þá misst 33 kíló. Hún segir frá þessu í viðtali við MyLondon.News.

Amy, 24 ára, tók ákvörðun um það að þegar hún myndi snúa aftur heim frá Íslandi þá ætlaði hún að breyta um lífsstíl. Hún byrjaði í Slimming World með systur sinni. Hún sagði skilið við skyndibitamat, snakk og sælgæti og skipti því út fyrir grænmeti, kartöflur og hrísgrjón.

Amy.

Amy fór niður um tíu kjólastærðir og fór frá því að vera um 94 kíló í 61 kíló. Þetta gerði hún á aðeins 12 mánuðum.

Ástæðan fyrir því að hún ákvað að breyta um lífsstíl var eftir að hún fór í Bláa Lónið og starfsmaður rétti henni XXL slopp.

„Að heimsækja Ísland átti að vera besta ferð lífs míns, en mér finnst ég hafa eyðilagt hana vegna hvernig mér leið varðandi þyngd mína. Ég skammaðist mín í sundfötum og það er bara alls ekki ég. Áður en ég þyngdist var ég svo örugg með mig sjálfa og leið vel með mig sjálfa,“ segir hún.

Amy í Bláa lóninu.

„Þegar við fengum sloppana okkar þá var mér rétt slopp í stærð XXL, í sömu stærð og kærasti minn.“

Eftir Íslandsferðina fór hún í átak með systur sinni. Fyrir þetta hafði hún reynt hina ýmsu megrunarkúra en vildi nú gera heilbrigða breytingu til frambúðar.

Amy í dag.

„Ég fylgdi matarplani Slimming World og átti erfitt með að trúa hversu mikið ég mætti borða,“ segir Amy.

Mataræði Slimming World gengur út á að það megi borða svokallan „Frjálsan mat“ sem eru meðal annars kartöflur, pasta, hrísgrjón, magurt kjöt, fisk, egg, ávexti og grænmeti.

„Ég fór frá því að elda varla í það að vera kokkur hússins,“ segir hún.

Kærasti Amy tók ekki þátt í prógramminu en tókst að missa um 16 kíló aðeins með því að borða það sama og hún.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 3 klukkutímum

Breiðablik í pottinum á morgun

Breiðablik í pottinum á morgun
Fréttir
Fyrir 3 klukkutímum

Sótt að ungum Sjálfstæðismönnum úr þeirra eigin röðum – „Hvert er Sjálfstæðisflokkurinn að fara?“

Sótt að ungum Sjálfstæðismönnum úr þeirra eigin röðum – „Hvert er Sjálfstæðisflokkurinn að fara?“
433Sport
Fyrir 4 klukkutímum

Ein besta knattspyrnukona heims sagði takk en nei takk við gylliboði

Ein besta knattspyrnukona heims sagði takk en nei takk við gylliboði
Pressan
Fyrir 4 klukkutímum

Ræddi við þá sem þekktu skotmanninn best og segir fjölmiðla og yfirvöld mála upp ranga mynd af skoðunum hans

Ræddi við þá sem þekktu skotmanninn best og segir fjölmiðla og yfirvöld mála upp ranga mynd af skoðunum hans
433Sport
Fyrir 5 klukkutímum
Messi að skrifa undir
433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Tók fram úr David Beckham í gær

Tók fram úr David Beckham í gær
Fréttir
Fyrir 6 klukkutímum

Þórhallur fer af stað með Draumaliðsdeild Alþingis

Þórhallur fer af stað með Draumaliðsdeild Alþingis
433Sport
Fyrir 8 klukkutímum

Leikmaður Newcastle hreinskilinn er hann ræddi skipti Isak til Liverpool

Leikmaður Newcastle hreinskilinn er hann ræddi skipti Isak til Liverpool
Fókus
Fyrir 8 klukkutímum

Guðrún Sørtveit: „Það hefur alltaf verið rosalega sterkt í mér að verða mamma“

Guðrún Sørtveit: „Það hefur alltaf verið rosalega sterkt í mér að verða mamma“

Tarot Spil

Veldu þér spil og sjáðu spádóm þinn.