fbpx
Mánudagur 02.mars 2026

Vilhjálmur Bretaprins er ekki að kveikja í kynbræðrum sínum

Ritstjórn Bleikt
Þriðjudaginn 28. júlí 2020 20:00

Vilhjálmur Bretaprins

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Vilhjálmi Bretaprins hlotnaðist á dögunum sá vafasami heiður að vera kosinn sá minnst aðlaðandi af frægum mönnum með skalla. Í það minnsta virðist það almennt vera skoðun þátttakenda í könnun sem gerð var fyrir hönd The Harley Street Skin Clinic, klíník sem sérhæfir sig í hárlosi.

Könnunin náði til 1000 karla á aldrinum 25-65 og það var Fast and Furious töffarinn Vin Diesel sem hreppti vinninginn, en 35% aðspurðra töldu skallann ljá honum karlmannlegra útlit. Vin Diesel sigraði naumlega annan töffara; Klettinn Dwayne „The Rock“ Johnson, sem hafnaði í öðru sæti með 33 prósent atkvæða. Á hæla Klettsins komu bresku leikararnir Jason Statham og Sir Patrick Stewart með 30%.

Meðal annarra sem listann prýddu voru þeir Bruce Willis, Ed Harris, Ving Rhames, Sir Ben Kingsley og Matt Lucas en botninn skrapar fyrrgreindur prins með aðeins 2 prósent atkvæða.

Image preview
Vin Diesel: Bar sigur úr býtum. Mönnum myndi ekki leiðast að líkjast honum.
Image preview
Kletturinn: Nartaði í hæla Vins
Image preview
Matt Lucas: Little Britain grínistinn féll ekki í kramið og lenti í næstsíðasta sæti.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 2 klukkutímum

Liverpool taki ekki í mál að selja

Liverpool taki ekki í mál að selja
Pressan
Fyrir 3 klukkutímum

Íranir gerðu árás á eina stærstu olíuhreinsunarstöð heims – „Veruleg stigmögnun“

Íranir gerðu árás á eina stærstu olíuhreinsunarstöð heims – „Veruleg stigmögnun“
Fókus
Fyrir 4 klukkutímum

Allt að 30 ára bið eftir geðlæknisþjónustu – ,,Það ræður ekkert kerfi við þetta”

Allt að 30 ára bið eftir geðlæknisþjónustu – ,,Það ræður ekkert kerfi við þetta”
433Sport
Fyrir 4 klukkutímum

Myndband: Uppákoma í Garðabæ um helgina vekur athygli – Hvað sagði Samúel sem gerði allt vitlaust?

Myndband: Uppákoma í Garðabæ um helgina vekur athygli – Hvað sagði Samúel sem gerði allt vitlaust?
433Sport
Fyrir 5 klukkutímum

Warnock snýr aftur í þjálfun

Warnock snýr aftur í þjálfun
Fókus
Fyrir 6 klukkutímum

Hlaut verðlaun rúmum mánuði eftir andlát sitt

Hlaut verðlaun rúmum mánuði eftir andlát sitt
Fréttir
Fyrir 8 klukkutímum

Davíð Oddsson er látinn

Davíð Oddsson er látinn
Pressan
Fyrir 16 klukkutímum

Hvíti dauðinn – Þögli Finninn sem Rússar gleyma ekki

Hvíti dauðinn – Þögli Finninn sem Rússar gleyma ekki

Tarot Spil

Veldu þér spil og sjáðu spádóm þinn.