fbpx
Föstudagur 26.desember 2025

Sofia Vergara er á toppi tilverunnar – sjáðu nýju villuna!

Ritstjórn Bleikt
Sunnudaginn 5. júlí 2020 20:00

Villan

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Modern Family leikkonan Sofia Vergara er ókrýnd drottning sjónvarpsbransanum sem hæst launaða sjónvarpsleikkona heims en hún hefur heldur betur slegið í gegn sem hin glaðlynda Gloria í þessum vinsælu gamanþáttum. Auk leiklistarinnar dútlar Sofia sér við ýmis önnur verkefni og hefur hannað tískulínu fyrir Walmart og húsgagnalínu í samvinnu við Rooms To Go.

Hamingjusöm hjón: Sofia Vergara og Joe Manganiello

En okkar besta kona er ekki aðeins lunkin í viðskiptum heldur einnig heppin í ástum. Hún er gift leikaranum Joe Manganiello sem mörgum þykir hafa unnið í genalottóinu og í fyrra léku þau saman í fyrsta sinn í kvikmyndinni Bottom of the 9th. Sofia og Joe búa saman í glæsilegu húsi í Beverly Hills en nýverið bættu þau heldur betur við eignalistann þegar þau fjárfestu í 1.500 fermetra villu í afgirta hverfinu Beverly Park. Glæsihýsið sem er með 10 baðherbergjum, sex svefnherbergjum, sundlaug og huggulegum bíósal kostaði litlar 26 milljónir dala eða 3,6 milljarða íslenskra króna.

Einkasonurinn: Sofia átti fyrir soninn Manolo Gonzalez Vergara með fyrri eiginmanni sínum.

Og nágrannarnir eru ekki neitt slor. Meðal nágranna Sofiu og Joe má nefna Denzel Washington, Sylvester Stallone, Eddie Murphy, Kimora Lee Simmons, Mark Wahlberg og Rod Stewart.

Lúxus: Það löðrar allt í lúxus í nýju villunni
Garðurinn var hannaður undir ítölskum áhrifum
Bomba: Sofia þykir ægifögur
Ræktin: Það eru hæg heimatökin að halda sér í formi með svona sal
Bíósalur: Svo þau geti horft á sig leika saman í Bottom of the 9th
Eldhúsið: Það mætti elda fyrir heilan her í þessum fína eldhúsi

 

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 14 klukkutímum

Russell Brand bregst við nýjum ásökunum um kynferðisofbeldi í myndbandi

Russell Brand bregst við nýjum ásökunum um kynferðisofbeldi í myndbandi
433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Tómas Bent og félagar í sögubækurnar í jólamánuðinum

Tómas Bent og félagar í sögubækurnar í jólamánuðinum
Fókus
Fyrir 15 klukkutímum

Starfsfólkið á hótelinu hélt að Lexi væri að grínast – „Ég varð auðvitað lífhræddur og það bætti ekki úr skák að vera í stöðunni sem ég var í“

Starfsfólkið á hótelinu hélt að Lexi væri að grínast – „Ég varð auðvitað lífhræddur og það bætti ekki úr skák að vera í stöðunni sem ég var í“
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Settu upphæðina sem Blikar greiddu Halldóri í annað samhengi – „Það er áhugavert að horfa til þess nú“

Settu upphæðina sem Blikar greiddu Halldóri í annað samhengi – „Það er áhugavert að horfa til þess nú“
Fókus
Fyrir 18 klukkutímum

Þess vegna áttu helst að borða hafragraut alla morgna

Þess vegna áttu helst að borða hafragraut alla morgna
Fréttir
Í gær

Gleðileg jól kæru lesendur

Gleðileg jól kæru lesendur
433Sport
Í gær

Salah sá fyrsti í sögunni

Salah sá fyrsti í sögunni

Tarot Spil

Veldu þér spil og sjáðu spádóm þinn.