fbpx
Mánudagur 29.apríl 2024

Fólkið sem nýtur sérstakrar velgengni deilir með fólki hvað það gerir til að ná sem bestum svefni

Ritstjórn Bleikt
Laugardaginn 4. apríl 2020 09:10

Bill Gates er ekki á flæðiskeri staddur.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Það getur verið þrautin þyngri að koma öllu sem þarf að gera í verk á þeim 24 klukkustundum sem eru í sólarhringnum. Flest höfum við ríkum skyldum að gegna; vinnan ratar stundum heim, maki og börn þurfa athygli og þvotturinn gengur ekki frá sér sjálfur, svo örfá dæmi séu tekin. Þegar mikið er að gera eiga margir það til að fara seinna að sofa á kvöldin og vakna fyrr á morgnana. Fullorðnir þurfa að sofa á bilinu sjö til níu klukkustundir á sólarhring og ef við fáum ekki nægan svefn getur það haft neikvæð áhrif á heilsuna. Það skiptir því miklu máli að sofa vel. Business Insider fjallaði um venjur nokkurra einstaklinga sem njóta mikillar velgengni áður en þeir fara að sofa. Þetta eru einstaklingar sem eru í mjög krefjandi starfi og hafa nóg að gera.

Microsoft co-founder Bill Gates leaves board to focus on ...

Les í klukkustund

Bill Gates, stofandi Microsoft og ríkasti maður heims, finnur sér alltaf tíma til að lesa áður en hann lokar augunum á kvöldin. Hann sagði í viðtali við Seattle Times að hann lesi í klukkutíma og það skipti engu máli hvað klukkan er þegar lesturinn hefst. Hann segist lesa um eina bók á viku að jafnaði.

How Sheryl Sandberg is handling coronavirus pandemic at home ...

Slekkur á símanum

Sheryl Sandberg, framkvæmdastjóri hjá Facebook, passar upp á það að fá góðan og samfelldan nætursvefn. Hún sagði í viðtali við USA Today ekki alls fyrir löngu að hún leggi það í vana sinn að slökkva á farsíma sínum áður en hún sofnar. Hún viðurkennir að það geti verið óþægileg tilfinning en með þessu tryggir hún að ekkert trufli svefninn.

Arianna Huffington leaves The Huffington Post; AOL - Business Insider

Fer í heitt bað

Arianna Huffington, stofnandi og fyrrverandi aðalritstjóri Huffington Post, þekkir af eigin raun hvaða áhrif mikið vinnuálag og lítil hvíld getur haft í för með sér. Hún hneig eitt sinn niður á skrifstofu sinni og kinnbeinsbrotnaði, en yfirliðið var rakið til ofþreytu. Eftir þetta passar Arianna að fá nægan svefn og sefur hún að jafnaði sjö til níu tíma á hverri nóttu. Hún slekkur á öllum rafmagnstækjum, fer í heitt bað og les bók áður en hún sofnar.

Oprah Winfrey announces $10M donation help Americans amid ...

Stundar hugleiðslu

Oprah Winfrey vinnur stundum langa vinnudaga enda hefur hún mörg járn í eldinum. Hún segist þó alltaf finna sér tíma til hugleiðslu á hverjum degi, tvisvar á dag. Hún hugleiðir áður en hún fer að sofa en með því nær hún góðri slökun sem hjálpar henni að festa svefn fyrr en ella. Þess má geta að Oprah lét þróa fyrir sig sérstakt hugleiðslusmáforrit sem nálgast má fyrir snjallsíma.

Gwyneth Paltrow, Brad Falchuk discuss household 'tension' with ...

Fer í nudd

Leikkonan Gwyneth Paltrow segist hugsa jafn mikið um að fá góðan nætursvefn og hún hugsar um að fá góða næringu og hreyfingu. Paltrow, sem auk þess að sinna leiklistinni, rekur lífsstílsvefinn Goop, segist ekki borða neitt frá átta að kvöldi til klukkan átta að morgni næsta dags. Þá segist Paltrow helst af öllu vilja fá fóta- eða höfuðnudd áður en hún sofnar. Þannig nær hún góðri slökun og sofnar fljótt og vel.

Barack Obama Posted His Favorite Books and Music of 2017 | Time

Horfir á sjónvarpið eða les bók

Barack Obama, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, var líklega í einu mest krefjandi starfi heims í þau átta ár sem hann gegndi embætti. Hann þurfti stundum að vera á fótum langt fram yfir miðnætti, starfs síns vegna. En Obama sagði í viðtali við Rolling Stone-tímaritið að þegar tími gæfist til myndi hann slaka á með lestri á góðri bók eða með því að horfa á spjallþáttinn The Daily Show.

Facebook board member Kenneth Chenault steps down - Business Insider

Útbýr lista

Kenneth Chenault, stjórnarformaður American Express í Bandaríkjunum, hefur nóg af verkefnum á sinni könnu. Í viðtali við lífsstílsritið Fast Company sagðist hann leggja það í vana sinn að skrifa niður lista yfir þá hluti sem hann vill áorka daginn eftir. Sniðug leið til að leiða hugann að næstu verkefnum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 8 klukkutímum

Peter Andre gæti fengið sekt vegna þess að hann nefnir ekki dóttur sína – Íslendingar hafa rýmri rétt til að trassa að nefna börn

Peter Andre gæti fengið sekt vegna þess að hann nefnir ekki dóttur sína – Íslendingar hafa rýmri rétt til að trassa að nefna börn
433Sport
Fyrir 8 klukkutímum

Ekki of vinsæll í Barcelona eftir valið – ‘Sá besti’ kemst ekki í liðið

Ekki of vinsæll í Barcelona eftir valið – ‘Sá besti’ kemst ekki í liðið
433Sport
Fyrir 9 klukkutímum

Byrjunarlið KR og Breiðabliks – Ísak og Patrik á bekknum

Byrjunarlið KR og Breiðabliks – Ísak og Patrik á bekknum
433Sport
Fyrir 9 klukkutímum

England: Manchester City í engum vandræðum

England: Manchester City í engum vandræðum
433Sport
Fyrir 11 klukkutímum

Hákon fékk mínútur í gríðarlega mikilvægum sigri

Hákon fékk mínútur í gríðarlega mikilvægum sigri
433Sport
Fyrir 12 klukkutímum

England: Frábær fyrri hálfleikur tryggði Arsenal þrjú stig í stórleiknum

England: Frábær fyrri hálfleikur tryggði Arsenal þrjú stig í stórleiknum

Tarot Spil

Veldu þér spil og sjáðu spádóm þinn.