YouTube-stjarnan Matt D‘Avella setti sér markmið í lok árs 2018. Hann ætlaði að prófa einn nýjan hlut í 30 daga, tólf sinnum. Sem sagt á hverjum mánuði tileinkaði hann sér nýja venju, eins og að fara í kalda sturtu á hverjum degi, hugleiða í klukkutíma á hverjum degi eða vakna klukkan fimm á morgnanna á hverjum degi.
Hann fer yfir árið í nýju YouTube-myndbandi sem hefur þegar fengið um 2,3 milljón áhorf.
Aðrir hlutir sem hann prófaði var tímabundin fasta (e. intermittent fasting), telja hverja kaloríu, skrifa í dagbók, skipuleggja hverja mínútu, gera öndunaræfingar og hætta að neyta koffíns.
Helsta ráðið sem Matt gefur þeim sem vilja tileinka sér nýjar venjur eða skora á sig á einhvern hátt, er að byrja. Ekki ofhugsa hlutina heldur byrja bara.
Horfðu á myndbandið hér að neðan. Þú færð kannski innblástur að tileinka þér einhverjar af þessum venjum á nýju ári.