Hugtakið „Instagram eiginmaður“ hefur verið notað yfir eiginmenn og kærasta sem taka myndir af mökum sínum fyrir Instagram. Leonardo DiCaprio hefur nú sannað sig sem „Instagram eiginmann“ eftir að hann sást taka myndir af kærustu sinni, Camillu Morrone, á Cannes kvikmyndahátíðinni.
Orðrómar um samband Leonardo, 44 ára, og Camilu, 21 árs, komu fyrst upp á yfirborðið í desember 2017. Nokkrum mánuðum seinna fóru þau saman á Coachella en þau hafa ekki enn gengið formlega saman rauða dregillinn.