fbpx
Þriðjudagur 13.maí 2025

Samband Lady Gaga og Bradley Cooper tekur nýja stefnu: „Gaga á erfitt með að sleppa“

Lilja Katrín Gunnarsdóttir
Miðvikudaginn 6. mars 2019 18:45

Bradley og Lady Gaga.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

A Star is Born er klárlega ein af vinsælli myndum síðasta árs, en í henni fara söngkonan Lady Gaga og leikarinn Bradley Cooper með aðalhlutverkin og leika tvo ástfangna einstaklinga í stormasömu sambandi.

Í nýjasta hefti Us Weekly er farið yfir samband Lafðinnar og leikarans, en háværar sögusagnir hafa verið uppi um að þau séu í raun og veru ástfangin af hvort öðru – sérstaklega eftir tilfinningaþrungna frammistöðu á Óskarsverðlaununum um daginn.

Sjá einnig: Sannleikurinn um samband Bradley Cooper og Lady Gaga: „Ég elska hana svo mikið“ – „Hann lét mér líða eins og ég væri frjáls“

Þvílík innlifun á Óskarnum.

„Gaga og Bradley náðu ofboðslega vel saman og dýfðu sér ofan í hlutverkin sín þegar þau voru í tökum,“ segir ónefndur heimildarmaður í samtali við Us Weekly. Hann bætir við að þessi hrifning og nánd sem þau hafa sýnt heiminum utan hvíta tjaldsins hafi bara verið sett á svið og að nú sé Bradley tilbúinn að hætta þeim leik eftir að verðlaunahátíðarhasarinn er búinn.

„Gaga á erfitt með að sleppa og ber sterkar tilfinningar til hans,“ bætir heimildarmaðurinn við um stöðuna.

Þá er einnig minnst á kærustu leikarans, fyrirsætuna Irinu Shayk, í umfjöllun blaðsins og þar kemur ekkert nýtt fram.

„Hún veit að Bradley og Gaga eru listamenn. Þetta skiptir hana engu máli.“

Bradley og Lady Gaga í hlutverkum sínum í myndinni A Star is Born.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 4 klukkutímum

Ekki neinn fögnuður en leikmenn United fá grillveislu ef þeir vinna úrslitaleikinn

Ekki neinn fögnuður en leikmenn United fá grillveislu ef þeir vinna úrslitaleikinn
Fréttir
Fyrir 5 klukkutímum

Gagnrýnir stjórnvöld og sakar um mannvonsku – „Leggja líf ungs fólks í hættu vegna þess að þeim líkar ekki við fyrirtækið sem bjargar þeim“

Gagnrýnir stjórnvöld og sakar um mannvonsku – „Leggja líf ungs fólks í hættu vegna þess að þeim líkar ekki við fyrirtækið sem bjargar þeim“
433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Amorim hótar að hætta – Mourinho líklegastur til að taka við ef það gerist

Amorim hótar að hætta – Mourinho líklegastur til að taka við ef það gerist
Fréttir
Fyrir 6 klukkutímum

Verðlag á matvöru heldur áfram að hækka – Innlend dagvara hækkar hraðar en erlend

Verðlag á matvöru heldur áfram að hækka – Innlend dagvara hækkar hraðar en erlend
433Sport
Fyrir 8 klukkutímum

Bonnie Blue braut af sér um helgina

Bonnie Blue braut af sér um helgina
433Sport
Fyrir 8 klukkutímum

Þetta er upphæðin sem Real Madrid ætlar að bjóða Liverpool til að fá Trent með á HM

Þetta er upphæðin sem Real Madrid ætlar að bjóða Liverpool til að fá Trent með á HM

Tarot Spil

Veldu þér spil og sjáðu spádóm þinn.