fbpx
Þriðjudagur 30.apríl 2024

Tinna glímdi við lotugræðgi í átta ár: „Byrjaði þegar ég var 16 ára, þá ældi ég í fyrsta skipið og eftir það var ekki aftur snúið“

Aníta Estíva Harðardóttir
Föstudaginn 12. október 2018 14:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Tinna Freysdóttir snappari og pistlahöfundur á síðunni Fagurkerar birti í gær einlæga frásögn af erfiðleikum sem hún hefur glímt við frá því hún var sextán ára gömul. Viðurkennir Tinna að færslan sé virkilega persónuleg og að henni hafi þótt erfitt að deila þessari reynslu þar sem margir af hennar nánasta fólki vissu ekki hvað hún gekk í gegnum.

Það sem Tinna glímdi við í um átta ár var sjúkdómurinn lotugræðgi (búlimía).

„Mér finnst eiginlega alveg ótrúlegt að hugsa til baka, ég trúi þessu ekki. Hvað var ég að spá? Það á enginn að ganga í gegnum það að vera með átröskun, en hún er samt svo algeng. Ef ég næ að hjálpa svo mikið sem einni manneskju við lestur á þessari færslu þá er ég sátt,“ segir Tinna í færslu sinni.

Tinna frá þeim tíma sem hún var hvað verst

Prófaði að æla matnum og eftir það var ekki aftur snúið

„Ég er búin að vera með opið Snapchat núna í tvö ár þar sem nokkur þúsund manns fylgjast með mér daglega og er ég mjög persónuleg þar og deili miklu með fylgjendum mínum, en þetta fékk að sitja á hakanum, þetta er eitthvað sem maður skammast sín fyrir. Það eru örfáir sem vita þetta um mig og margir sem þekkja mig sem munu lesa þessa færslu og vera hissa. En málið er að það getur verið ómögulegt að vita/sjá hver er með átröskunarsjúkdóm. Það er að minnsta kosti mjög erfitt að sjá það utan á búlimíusjúklingum að þeir séu með átröskun því þessir einstaklingar eru ekkert endilega mjög grannir, eins og þeir sem eru til dæmis með anorexíu.“

Þegar Tinna var í grunnskóla var hún ósköp venjuleg, grönn og flott stelpa. Það háði henni hins vegar á hverjum degi að hún hafði meiri mjaðmir og rass heldur en margar vinkonur hennar.

„Ég var bara öðruvísi vaxin og var um fimm kílóum þyngri en þær sem sást í raun ekki neitt. Ég notaði buxur frá Diesel í stærð 27 en þær í númer 25. Það truflaði mig mjög mikið. Þannig að einhvern vegin byrjaði þetta allt saman þegar ég var sextán ára gömul. Þá prófaði ég fyrst að æla í klósettið og eftir það var ekki aftur snúið.“

Hafði góða stjórn á sjúkdómnum

Veikindi Tinnu gengu á þar til hún var orðin 24 ára gömul en það var þá sem hún tók ákvörðun um að reyna að eignast börn.

„Ég skil ekki alveg hvernig hausinn minn virkaði, en ég sem sagt fór alltaf til Glasgow á haustin í verslunarferð í fjórar nætur og eins og þeir eru með átröskun vita þá getur verið mjög óhentugt að fara að æla hér og þar, hvað þá í útlöndum. Það er svo auðvelt þegar maður er í sínu venjulega umhverfi, til dæmis heima og í vinnunni. Þannig að ég tók ákvörðun um að alltaf þegar ég færi til Glasgow þá tæki ég pásu í ferðinni og myndi bara njóta þess að borða. Svo komu jólin fljótlega eftir Glasgow ferðirnar og þá fannst mér sniðugt að taka bara pásu frá búlimíunni. Alltaf frá Glasgow ferðinni og þangað til eftir 31. desesmber. Svo fór ég strax á fullt eftir áramót að einbeita mér að því að ná þessum c.a. 3 kílóum af sem ég hafði fengið á mig yfir þessa þrjá mánuði. Þannig að ég gat alveg stjórnað þessu sjálf. Sem er mjög skrítið, því miðað við það sem ég hef lesið þá á maður ekkert að geta haft svona góða stjórn á þessu.“

Líf Tinnu snerist því um það að æla öllu því sem hún borðaði í um níu mánuði ársins og svo tók hún sér þriggja mánaða pásu frá sjúkdómnum.

„Mér finnst mjög erfitt að skrifa þetta þar sem þetta er auðvitað frekar sjúkt, það verður að segjast eins og er. En þegar maður er með búlimíu þá er það bara aukaatriði. Það eina sem skiptir máli er að þyngjast ekkert og vera mjó. En allavega, ég borðaði bara það sem mér sýndist og hafði engar áhyggjur af því að ég myndi fitna því ég fór beint inn á klósett að æla eftir að ég borðaði. Ég man hvað það var oft sagt við mig: „Vá hvað þú lítur vel út” og ég var mjög ánægð, en aðilarnir sem sögðu þetta við mig höfðu ekki hugmynd um að ég ældi öllu sem ég borðaði til þess að „líta svona vel út.”“

Tinna í dag – Heilsuhraust og flott kona

Óánægð með þá ramma sem átröskunarsjúklingar eru settir í

Tinna hefur lesið sig mikið til um átröskunarsjúkdóma og er hún virkilega ósátt með þá „ramma“ sem átröskunarsjúklingar eru settir í.

„Ég passaði aldrei í þennan búlimíuramma og er það ein af ástæðunum fyrir því að ég vil koma þessu frá mér því það þarf ekkert að vera að maður passi inn í þessa ramma, sem var mitt tilfelli og ég vil vekja athygli á því. Einstaklingar með búlimíu eru til dæmis skilgreindir þannig að þeir borða í svaka hollum og alveg þvílíkt magn, æla því svo og æfa oftast alveg á fullu. Ég borðaði aldrei óeðlilega mikið magn í einu, ég borðaði bara venjulega nokkrum sinnum á dag eins og eðlilegt fólk gerir, en fór svo bara og ældi matnum. Ég var líka lítið sem ekkert í ræktinni. Þeir sem passa ekki inn í þessa ramma gætu jafnvel hugsað: „Nú jæja, þá er ég kannski ekkert með átröskun, þetta er greinilega ekki svo alvarlegt hjá mér?”“

Annað sem Tinna hefur mikið velt fyrir sér er það að alltaf sé talað um það að þeir sem séu með átröskun sjái sig sem feita einstaklinga.

„Ég sá mig aldrei þannig, ég vissi að ég væri í kjörþyngd og fannst ég ekki feit. Ég var bara ánægð að vera grönn og að búlimían væri að halda þyngdinni niðri. Hins vegar var ég aldrei 100% ánægð með mig og langaði alltaf að verða aðeins léttari, því það er frekar þungt í mér pundið. En eins og ég segi ég var ekkert svakalega ósátt með mig og ég vissi að öðrum fannst ég flott sem dreif mig áfram. Leið vel þegar ég var að æla, en illa þegar ég tók pásur því þá fitnaði ég.“

Setti barnið í fyrsta sæti

Þegar Tinna hafði verið með eiginmanni sínum í tæplega tvö ár þá ákváðu þau að hefja barneignir.

„Það sem ég hafði alltaf óttast var að ég væri orðin ófrjó eftir þetta allt saman. Ég vissi að ég þyrfti að hætta fyrir fullt og allt, þannig að ég ákvað að 31. desember árið 2012 væri minn síðasti dagur með búlimíu. Ég fór til Glasgow um haustið en ákvað eftir ferðina að taka ekki pástu til áramóta því ég ætlaði að hætta þá. Sjúk hugsun, ég veit. Þetta gekk vel, enda langaði mig mjög mikið að eignast barn og vildi algjörlega hætta þessum ógeðslega búlimíu vítahring og verða heilbrigð. Ég varð ólétt í fyrstu tilraun og eignaðist fyrsta barnið mitt 26. desember 2013. Þannig að sem betur fer var ég ekki búin að skemma þann valmöguleika að verða móðir, það hefði eyðilagt mig.“

Tinna ákvað að setja barnið sitt í fyrsta sæti og borðaði vel á meðgöngunni.

„Ég gaf loksins skít í búlimíuna, barnið skyldi ganga fyrir. Ég hef ekki ælt síðan 31. desember 2012 og myndi aldrei byrja aftur, enda er ég um 11 kílóum þyngri núna heldur en ég var þá. Mig langar alveg að missa nokkur kíló (og má alveg við því), en ég er ekki að fara óheilbrigða leið núna heldur fer ég í ræktina reglulega og borða hollt í staðinn fyrir að borða ógeðslega óhollt og æla matnum.“

Mikil sjálfsblekking sem fylgir sjúkdómnum

Tinna tekur það fram að það séu nákvæmlega engir kostir sem fylgja því að þjást af átröskunarsjúkdómi heldur einungis gallar.

„Það er nákvæmlega engir kostir. Bara sjálfsblekkingin sem á sér stað sem er þannig að þú heldur að þú sért að gera góða hluti og sért mjó/r og flott/ur út af búlimíunni þó svo að maður viti alveg vel innst inni að þetta er sjúkt og rangt. Búlimía hefur bara slæm áhrif, andlega og líkamlega. Átröskun getur dregið þig til dauða, þetta er stórhættulegur sjúkdómur og er flokkaður sem geðsjúkdómur. Þú lifir í einhvers konar búlimíu heimi þar sem allt snýst um að æla, koma matnum út úr þér svo þú fitnir ekki. Þetta hefur áhrif á allan daginn þinn, alla daga, og þú hugsar stöðugt um að fara að borða og svo æla. Það er nákvæmlega ekkert gott sem kemur út úr þessu, ég fór í hjartarannsókn fyrir um einu og hálfu ári því ég var svo hrædd um að ég væri búin að skemma hjartað mitt, það eru mjög mikil átök fyrir hjartað manns að æla svona oft í öll þessi ár. Að vera með tannbursta og tannkrem í töskunni í mörg ár og bursta allt að 10 sinnum á dag er alveg hrikalega þreytt dæmi, en þetta gerði maður.“

Enginn sem veltir þyngd þinni fyrir sér nema þú sjálf/ur

Tinna biðlar til fólks með átröskun að leita sér aðstoðar.

Myndin sem Tinnu þótti erfitt að deila

„Ég lofa þér því að þetta er ekki þess virði og lífið er svo mikla betra án átröskunar. Líf mitt einkenndist af þessu helvíti í öll þessi ár, vá hvað ég vildi óska þess að ég gæti tekið þetta til baka, en ég get það því miður ekki. Plís hugsaðu um langtímaáhrifin og reyndu að hætta og fáðu aðstoð, þú munt ekki sjá eftir því. Ég þurfti ekki aðstoð en það er mjög algengt að þurfa aðstoð og það er nákvæmlega ekkert að því. Líf mitt er svo miklu betra án búlimíunnar og ég hef lært með tímanum að það er öllum drullu sama hvað ég er þung, nema ég. Að vera með búlimíu snýst rosalega mikið um að líta vel út fyrir aðra, maður spáir mikið í því hvernig aðrir sjá mann. Það hefur hjálpað mér mikið að hætta að spá í því hvað öðrum finnst, því það eru allir alltaf bara að hugsa um sig, það eru allir svo uppteknir af sjálfum sér og halda að allir séu að spá í sér, en það er alls ekki svoleiðis. Ef ég fitna eða grennist um einhver kíló þá er enginn að velta sér neitt upp úr því nema ég. Lifum bara okkar lífi og hættum að spá í því hvað öðrum finnst. Ég er nokkrum kílóum of þung, en hey, það er öllum alveg sama, nema mér!“

Tinna er enn þann dag í dag að læra að elska sjálfa sig og segir hún þá vinnu skila sér hægt og rólega.

„Þessari mynd á ég mjög erfitt með að deila en hún sýnir mig, alveg eins og ég er. Ég er að reyna að elska mig eins og ég er og auðvitað hefur líkami minn breyst eftir tvær meðgöngur og tvo keisaraskurði. En fjandinn hafi það, ég er flott eins og ég er og hana nú!“

Hægt er að fylgjast með Tinnu á Snapchat undir notandanafninu: tinnzy88

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 2 klukkutímum

Orðið á götunni: Guðmundur Ingi leiðir Vinstri græn lokaskrefin samkvæmt nýrri Gallup-könnun

Orðið á götunni: Guðmundur Ingi leiðir Vinstri græn lokaskrefin samkvæmt nýrri Gallup-könnun
Fréttir
Fyrir 3 klukkutímum

Víetnamski athafnamaðurinn Quang Le fórnarlamb hakkara – Dreifa einkaskilaboðum hans og þar á meðal rassamyndum úr World Class

Víetnamski athafnamaðurinn Quang Le fórnarlamb hakkara – Dreifa einkaskilaboðum hans og þar á meðal rassamyndum úr World Class
433Sport
Fyrir 4 klukkutímum

Aðdáendur í áfalli eftir að nýju treyjunni var lekið – Sjáðu myndirnar

Aðdáendur í áfalli eftir að nýju treyjunni var lekið – Sjáðu myndirnar
Fréttir
Fyrir 4 klukkutímum

Maðurinn sem missti hús sitt í Reykjanesbæ á umdeildan hátt dæmdur fyrir að ráðast á lögreglumenn

Maðurinn sem missti hús sitt í Reykjanesbæ á umdeildan hátt dæmdur fyrir að ráðast á lögreglumenn
Fréttir
Fyrir 7 klukkutímum

Inga Sæland ekki sátt: „Efri árin eiga að vera gæðaár en ekki tími kvíða og óörygg­is“

Inga Sæland ekki sátt: „Efri árin eiga að vera gæðaár en ekki tími kvíða og óörygg­is“
Fréttir
Fyrir 7 klukkutímum

Sigríður Dögg segir að RÚV þurfi að gera betur: „Lítilsvirðing gagnvart konum á ekki að líðast“

Sigríður Dögg segir að RÚV þurfi að gera betur: „Lítilsvirðing gagnvart konum á ekki að líðast“

Tarot Spil

Veldu þér spil og sjáðu spádóm þinn.