fbpx
Mánudagur 02.febrúar 2026

Bókaáskorun – #26 bækur

Ragna Gestsdóttir
Þriðjudaginn 9. janúar 2018 15:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Amtsbókasafnið á Akureyri birti á dögunum bókaáskorun á samskiptamiðlinum Facebook:

Jæja rísið úr tungusófunum og slökkvið á Netflix nú er komið að bókaáskorun!  26 bækur á einu ári er það ekki bara fínt nýjársheit?

Áskorun þessi gengur út að hvetja fólk til að lesa að minnsta kosti 26 bækur á árinu 2018 sem nýlega er gengið í garð. Gefnar eru upp 26 hugmyndir að ýmsum bókum sem hægt er að lesa. Þar má til dæmis nefna þroskasögu, unglingabók, bók sem gerist að sumri, bók sem ögrar og svo framvegis. Með áskoruninni vill Amtsbókasafnið efla bókalestur í samfélaginu. Tungusófinn og Netflix vísa í síðasta áraskaup þar sem hið svokallaða bókmenntaeftirlit ræðst inn á íslenskt heimili og athugar hvort það standist kröfur um íslenska menningu. Auðvitað var um grín að ræða en oft er sagt að öllu gríni fylgi alvara.

Hallgrímur Helgason tók við viðurkenningu Rithöfundasjóðs Ríkisútvarpsins fyrir ritstörf þann 4. janúar og sló á svipaða strengi í ræðu sinni við það tilefni. „Helsta ógnin við íslenska tungu er tungusófinn,“ sagði Hallgrímur. Amtsbókasafnið vill að sjálfsögðu ekki ganga jafn hart fram og bókmenntaeftirlitið í Skaupinu en vill þó gjarnan sjá fólk lesa svolítið meira á árinu 2018. Viðbrögð við færslunni, sem birt var fyrir helgi, fóru fram úr björtustu vonum og hafa hátt í 300 manns deilt henni. Starfsfólk Amtsbókasafnsins er afar hrært yfir þessum stórkostlegu viðbrögðum og fljótt varð ljóst að þessum mikla áhuga þurfti að fylgja eftir. Því var stofnaður hópur á Facebook sem heitir einfaldlega #26bækur.

Þangað eru allir þátttakendur áskoruninnar velkomnir, sem og allir þeir sem eru áhugasamir eða ætla jafnvel aðeins að lesa eina bók af listanum. Aðalatriðið er að lesa og þá helst aðeins meira en vanalega. Amtsbókasafnið hvetur alla til að líta á áskorunina. Kannski höfða ekki öll atriðin á listanum til fólks en þá er um að gera að gera hann að sínum, skipta út og bæta öðru við í staðinn. Nóg er til af listum á netinu ef fólki skortir hugmyndir. En svo er oft gott að fara út fyrir þægindarammann og lesa það sem viðkomandi hefði vanalega ekki valið. Kannski reynist „leiðinlega“ bókin vera einmitt sú skemmtilega.

Fólk má endilega vera duglegt að nota myllumerkið #26bækur til að vekja athygli á áskoruninni, lestri og bókum. Gerum bókalestur sýnilegri í samfélaginu!

Facebookhópur.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 14 klukkutímum

Björn Jón skrifar: Æra látins manns

Björn Jón skrifar: Æra látins manns
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Liverpool vill berjast við Chelsea um unga varnarmanninn

Liverpool vill berjast við Chelsea um unga varnarmanninn
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Hörmungar tölfræði Garnacho í gær – Sérfræðingar tóku hann af lífi

Hörmungar tölfræði Garnacho í gær – Sérfræðingar tóku hann af lífi
Pressan
Fyrir 17 klukkutímum

Fasteignajöfur gerði verktaka „ósæmilegt tilboð“ fyrir að yfirgefa eiginmann sinn fyrir hann

Fasteignajöfur gerði verktaka „ósæmilegt tilboð“ fyrir að yfirgefa eiginmann sinn fyrir hann
433Sport
Fyrir 19 klukkutímum
Atletico kaupir Lookman
Fréttir
Fyrir 20 klukkutímum

Þetta eru dýrustu póstnúmerin eftir einbýli og fjölbýli

Þetta eru dýrustu póstnúmerin eftir einbýli og fjölbýli
433Sport
Fyrir 20 klukkutímum

Liverpool reynir að fá hollenska landsliðsmanninn

Liverpool reynir að fá hollenska landsliðsmanninn
Pressan
Fyrir 20 klukkutímum
Eru kettir misskildir?
Fréttir
Í gær

Dulin einkenni briskrabbameinsins sem banaði Alan Rickman

Dulin einkenni briskrabbameinsins sem banaði Alan Rickman
Pressan
Í gær

Framdi óskiljanlegan glæp gegn börnum sínum og heimiliskettinum

Framdi óskiljanlegan glæp gegn börnum sínum og heimiliskettinum

Tarot Spil

Veldu þér spil og sjáðu spádóm þinn.