fbpx
Þriðjudagur 30.apríl 2024

Kom að syninum við að maka á sig Nutella frá toppi til táar

Aníta Estíva Harðardóttir
Mánudaginn 30. júlí 2018 19:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Flestir foreldrar kannast við það að koma að barninu sínu við það að gera eitthvað sem það á alls ekki að vera að gera. Hvort sem það er að leika sér með klósettburstann eða maka Vaselíni í hárið á sér, þá getur hinn saklausasti leikur barnsins verið versta martröð foreldranna.

Claire Fallon, móðir hins þriggja ára gamla Harrison gekk inn á son sinn um daginn, þar sem hann hafði náð sér í stóra dollu af Nutella.

Einhverra hluta vegna hafði Harrison ekki ákveðið að borða súkkulaðið úr dollunni, heldur maka því á sig allan. Frá toppi, til táar.

Claire fékk áfall þegar hún sá son sinn en hann hafði ekki aðeins makað sjálfan sig út í súkkulaði heldur var það einnig komið á húsgögnin og gólfteppið.

„Fyrst var ég mjög reið við hann og var í áfalli yfir því hvað honum tókst að gera á stuttum tíma. En Harrison hélt áfram að berja í lærin á sér með þeim afleiðingum að Nutella skvettist út um allt. Ég greip hann og setti hann í baðkarið. Sem betur fer náði ég öllu fljótlega af honum,“ segir Claire í samtali við Metro.

Claire og kærasti hennar voru nýlega flutt í íbúðina sem þau búa í og þurfti Claire að ráða sérstaka teppahreinsimenn til þess að ná súkkulaðinu úr gólfteppinu.

„Mín fyrstu viðbrögð voru áhyggjur, við eru ný flutt inn í íbúðina og ég vissi ekki hvernig kærasti minn myndi taka þessu. En í dag get ég ekki annað en hlegið af myndinni, þetta er bráðfyndið.“

Claire segir að héðan í frá muni Nutella dollan verða geymd á efstu hillunni í eldhúsinu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 3 klukkutímum

Maðurinn sem missti hús sitt í Reykjanesbæ á umdeildan hátt dæmdur fyrir að ráðast á lögreglumenn

Maðurinn sem missti hús sitt í Reykjanesbæ á umdeildan hátt dæmdur fyrir að ráðast á lögreglumenn
433Sport
Fyrir 3 klukkutímum

Liverpool ætlar að taka þátt í kapphlaupinu við Arsenal og Manchester United

Liverpool ætlar að taka þátt í kapphlaupinu við Arsenal og Manchester United
Fréttir
Fyrir 6 klukkutímum

Sigríður Dögg segir að RÚV þurfi að gera betur: „Lítilsvirðing gagnvart konum á ekki að líðast“

Sigríður Dögg segir að RÚV þurfi að gera betur: „Lítilsvirðing gagnvart konum á ekki að líðast“
Fréttir
Fyrir 6 klukkutímum

Telja að 450.000 rússneskir hermenn hafi fallið eða særst

Telja að 450.000 rússneskir hermenn hafi fallið eða særst
Fréttir
Fyrir 7 klukkutímum

Segja samdrátt vera staðreynd í rússneska hagkerfinu

Segja samdrátt vera staðreynd í rússneska hagkerfinu
Fréttir
Fyrir 9 klukkutímum

Er þetta versta stefnumót sögunnar? Frábært kvöld þar til hún þurfti að fara á klósettið

Er þetta versta stefnumót sögunnar? Frábært kvöld þar til hún þurfti að fara á klósettið