fbpx
Fimmtudagur 18.desember 2025

Ungfrú Kanada svaraði fullum hálsi þegar hún var gagnrýnd fyrir þyngdaraukningu

Ritstjórn Bleikt
Þriðjudaginn 31. janúar 2017 13:50

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Siera Bearchell vakti gríðarlega athygli með þátttöku sinni í Miss Universe í vikunni en hún er dugleg að hvetja konur til að elska líkama sinn eins og hann er í stað þess að reyna að breytast. Siera fékk á sig gagnrýni í upphafi keppninnar fyrir að vera þyngri en þegar hún vann sér inn þátttökurétt með því að vinna fegurðarsamkeppnina Miss Universe Canada. Hún hefur svarað gagnrýninni fullum hálsi og varð í leiðinni fyrirmynd fyrir stúlkur og konur í heimalandi sínu Kanada og um allan heim. Til að toppa allt saman gekk henni svo mjög vel í keppninni.

https://www.instagram.com/p/BP6WuA6AYSv/

Siera er laganemi og hefur hlaupið maraþon og lifir mjög heilbrigðum lífsstíl.  Hún var spurð á blaðamannafundi í keppninni: „Hvernig er að vera svona miklu… stærri en hinir keppendurnir?“ Þessi spurning gerði hana nánast orðlausa en hennar svar við þessu var frábært.

„Ég hugsaði með mér: „Hvernig er að vera ég sjálf? Hvernig er að vera sjálfsörugg eins og ég er? Hvernig er að uppfylla drauminn minn með því að vera fulltrúi Kanada á Miss Universe sviðinu? Hvernig er að vera fyrirmynd fyrir svona margar ungar konur sem eiga í erfiðleikum með að finna einhverja til þess að líta upp til? Hvernig er að endurskilgreina fegurð?“ Mitt svar – Það er frábær tilfinning.“

https://www.instagram.com/p/BPwBTo6jgEb/

Margir skrifuðu neikvæðar athugasemdir um Sieru á samfélagsmiðlum fyrir að vera orðin þyngri en í undankeppninni í Kanada. Fyrir nokkrum dögum síðan sagði Siera frá því á Instagram að fyrir fyrri keppnir hafi hún takmarkað mjög mikið hvað hún borðaði af mat. Siera hefur keppt í nokkrum fegurðarsamkeppnum og var meðal annars krýnd Miss Teen Canada og Miss Universe Canada eins og áður kom fram.

„Mér leið hræðilega, var ótrúlega meðvituð um sjálfa mig og leið aldrei eins og ég væri nógu góð. Sama hversu lítið ég borðaði og hversu mikið ég léttist, var ég sífellt að bera mig saman við aðra og fannst eins og ég gæti náð að léttast meira.“

 

https://www.instagram.com/p/BIGiP2ajUL7/

Siera segir að andlega hafi þetta verið erfitt. Hún hvetur konur til að sætta sig við það hvernig þær líta út og minnir á að fegurðin komi innan frá. Hún er hætt að neyða sig til þess að verða einhvern vegin öðruvísi en hún er.

„Það voru dagar sem ég borðaði próteinstykki, var í marga klukkutíma í ræktinni og átti erfitt með að sofna því að ég var svo svöng. Líkami minn er ekki gerður til þess að vera grannur og það er allt í lagi. Ég er heilbrigð. Ég er sjálfsörugg.“

https://www.instagram.com/p/BPh3HelgDXQ/

Þess má geta að Siera komst í topp 9 í keppninni um titilinn Miss Universe og var ótrúlega glæsilegur fulltrúi heimalands síns.

https://www.instagram.com/p/BP2iCiogBJ1/?taken-by=sierabearchell

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 3 klukkutímum

Kjartan segir að þetta muni leiða til stóraukinna umferðartafa

Kjartan segir að þetta muni leiða til stóraukinna umferðartafa
433Sport
Fyrir 3 klukkutímum

Borgaði sjálfum sér 253 milljónir í laun á síðasta ára – Starfar mest á Youtube

Borgaði sjálfum sér 253 milljónir í laun á síðasta ára – Starfar mest á Youtube
Fókus
Fyrir 4 klukkutímum

Lítt þekkt ættartengsl: Dúlla og djazz-istinn

Lítt þekkt ættartengsl: Dúlla og djazz-istinn
433Sport
Fyrir 4 klukkutímum

Vill fara frá Chelsea í janúar

Vill fara frá Chelsea í janúar
Fókus
Fyrir 14 klukkutímum

Furðuleg athugasemd Elon Musk um brjóstin á Sydney Sweeney vekja hneykslun

Furðuleg athugasemd Elon Musk um brjóstin á Sydney Sweeney vekja hneykslun
433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Fimm félög á eftir Semenyo – United skoðar að selja þennan til að fjármagna kaupin

Fimm félög á eftir Semenyo – United skoðar að selja þennan til að fjármagna kaupin
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Albert sagður ósáttur og vilja burt – Eitt stórlið sagt skoða málið

Albert sagður ósáttur og vilja burt – Eitt stórlið sagt skoða málið
Fréttir
Fyrir 16 klukkutímum

Móðir ófeðraðs barns forvitnaðist um réttindi sín en fékk rangar upplýsingar – Uppgötvaði hið rétta 14 árum síðar

Móðir ófeðraðs barns forvitnaðist um réttindi sín en fékk rangar upplýsingar – Uppgötvaði hið rétta 14 árum síðar

Tarot Spil

Veldu þér spil og sjáðu spádóm þinn.