fbpx
Mánudagur 02.mars 2026

Bára: „Er ekki svolítið skrýtið að kenna eins árs gömlu barni lag um að eitthvað við líkamann þeirra sé ljótt?“

Guðrún Ósk Guðjónsdóttir
Mánudaginn 15. maí 2017 13:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Bára Ragnhildardóttir bloggari á Ynjum birti pistil um ballett námskeið sem tveggja ára dóttur hennar fór á fyrir skömmu. Í ballett tímunum lærði hún nýtt orð: Ljótar. „Er ekki svolítið skrýtið að kenna eins árs gömlu barni lag um að eitthvað við líkamann þeirra sé ljótt? Hverju er verið að planta í hausinn á þeim?“ Skrifar Bára í pistlinum. Bára gaf Bleikt góðfúslegt leyfi til að birta pistilinn í heild sinni sem birtist fyrst á Ynjum.

Mynd/Getty

Ég skráði tæplega 2 ára gamla dóttur mína í ballett fyrir stuttu. Þetta var stutt námskeið fyrir tveggja ára börn sem mér fannst kjörið að skella mér með hana á. Við höfum verið dugleg að fara með hana á námskeið í tónlist og hreyfingu síðan hún var pínu pons og fannst kjörið að prófa ballett næst.

Dóttir mín er altalandi, segir langar setningar og er mjög skýr. Í þessum ballett tímum lærði hún samt nýtt orð, þetta orð er greinilega ekki mikið notað heima hjá okkur en allir verða samt að kunna það. Orðið var „ljótar“. Þótt það sé allt í hinu besta lagi að barn sem verður bráðum tveggja ára kunni að segja „ljótar“ alveg eins og það kann að segja önnur lýsingarorð fannst mér þetta samt mjög óviðeigandi kennslustund. Ástæðan er einföld, „ljótar“ var partur af lagi sem börnin sungu um líkamann sinn. Textinn er einhvern vegin svona „Ljótar, ljótar balletttær. Fínar, fínar balletttær“ og börnin áttu að benda á fæturna á sér um leið og þau sungu.

Myndin tengist greininni ekki beint.

Ég skil vel að tilgangur lagsins á að vera að kenna börnunum að í ballett er maður með strekktar ristar, en er samt ekki svolítið skrítið að kenna eins árs gömlu barni lag um að eitthvað við líkamann þeirra sé ljótt? Hverju er verið að planta í hausinn á þeim?

Við skemmtum okkur mjög vel á ballettnámskeiðinu, dóttir mín mun betur en ég og hana langaði helst ekkert heim eftir að tímanum lauk.

En ég held að ég velji ekki aftur ballett fyrir hana. Ef hana langar í ballett aftur verður það að hennar frumkvæði og ég hef vonandi nokkur ár til að hugsa málið hvort það verði í boði.

Kannski að við prófum fótbolta næst, ætli séu sungnir niðurrifssöngvar í þeirri íþrótt?


Til að lesa meira eftir Báru kíktu hér.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 2 klukkutímum

Liverpool taki ekki í mál að selja

Liverpool taki ekki í mál að selja
Pressan
Fyrir 2 klukkutímum

Íranir gerðu árás á eina stærstu olíuhreinsunarstöð heims – „Veruleg stigmögnun“

Íranir gerðu árás á eina stærstu olíuhreinsunarstöð heims – „Veruleg stigmögnun“
Fókus
Fyrir 3 klukkutímum

Allt að 30 ára bið eftir geðlæknisþjónustu – ,,Það ræður ekkert kerfi við þetta”

Allt að 30 ára bið eftir geðlæknisþjónustu – ,,Það ræður ekkert kerfi við þetta”
433Sport
Fyrir 4 klukkutímum

Myndband: Uppákoma í Garðabæ um helgina vekur athygli – Hvað sagði Samúel sem gerði allt vitlaust?

Myndband: Uppákoma í Garðabæ um helgina vekur athygli – Hvað sagði Samúel sem gerði allt vitlaust?
433Sport
Fyrir 5 klukkutímum

Warnock snýr aftur í þjálfun

Warnock snýr aftur í þjálfun
Fókus
Fyrir 5 klukkutímum

Hlaut verðlaun rúmum mánuði eftir andlát sitt

Hlaut verðlaun rúmum mánuði eftir andlát sitt
Fréttir
Fyrir 8 klukkutímum

Davíð Oddsson er látinn

Davíð Oddsson er látinn
Pressan
Fyrir 16 klukkutímum

Hvíti dauðinn – Þögli Finninn sem Rússar gleyma ekki

Hvíti dauðinn – Þögli Finninn sem Rússar gleyma ekki

Tarot Spil

Veldu þér spil og sjáðu spádóm þinn.