Platan Algleymi hefur verið nokkuð lengi í vinnslu en upptökur hófust árið 2016. Þegar fyrsta útgáfa var tilbúin í upphafi ársins 2017 var hætt við útgáfu þar sem hljómsveitarmeðlimir voru ekki nógu ánægðir með útkomuna. Eftir tvö og hálft ár til viðbótar er Algleymi nú loksins fáanleg.
Platan var hljóðrituð af forsprakka sveitarinnar, sem kallaður er D.G. Var hún fullunnin til útgáfu í hljóðverinu Orgone Studios í Bretlandi en upptökustjóri var Jamie Gomez Arellano. Um hönnun umslags sá myndlistarmaðurinn Manuel Tinnemans, sem hefur áður unnið með black metal-hljómsveitum. Til dæmis Deathspell Omega frá Frakklandi og Urfaust frá Hollandi.
Misþyrming var stofnuð árið 2014 og ári seinna kom fyrsta platan út, Söngvar elds og óreiðu. Hefur hljómsveitin verið mjög virk síðan í tónleikahaldi og kom meðal annars fram á KEXPort árið 2016, árlegri sumarhátíð Kex Hostels á Skúlagötu.
Til að fylgja plötunni eftir mun Misþyrming halda tónleikaferðalag um Evrópu frá september næstkomandi. Þá kemur sveitin einnig fram á hátíðinni Ascension í Hlégarði í Mosfellsbæ. Þar munu koma fram þrjátíu hljómsveitir, flestar black metal-sveitir, frá Íslandi og erlendis frá.
Auk Misþyrmingar munu meðal annars koma fram Antaeus frá Frakklandi, Gost frá Bandaríkjunum, Jupiterian frá Brasilíu og Wlvennest frá Belgíu. Hátíðin er haldin 13. til 15. júní.
Algleymi er nú aðgengileg á Spotify, YouTube og fleiri streymisveitum en einnig geisladiskur og vínylútgáfa. Síðar á árinu mun platan koma út á kasettu.