fbpx
Fimmtudagur 18.desember 2025

Allra veðra von og Allt eitthvað sögulegt opna í Hafnarborg

Ragna Gestsdóttir
Föstudaginn 31. ágúst 2018 09:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Tvær sýningar verða opnaðar í Hafnarborg í kvöld kl. 20. Það eru sýningarnar Allra veðra von í aðalsal safnsins sem samanstendur að verkum fimm listakvenna og sýningin Allt eitthvað sögulegt, ljósmyndir eftir Báru Kristinsdóttur, sem verður opnuð í Sverrissal.

Haustsýning Hafnarborgar 2018 er sýningin Allra veðra von. Á sýningunni eru verk eftir Höllu Birgisdóttur, Ragnheiði Hörpu Leifsdóttur, Ragnheiði Maísól Sturludóttur, Sigrúnu Hlín Sigurðardóttur og Steinunni Lilju Emilsdóttur.

Sýningarstjóri Allra veðra von er Marta Sigríður Pétursdóttir, menningar- og kynjafræðingur, en hugmynd hennar að sýningunni var valin úr innsendum sýningartillögum síðastliðið haust þegar kallað var eftir tillögum að haustsýningu í Hafnarborg árið 2018. Sýningin fjallar um samband mannsins við veður. Eftir eitt versta sumar í manna minnum á suðversturhorni landsins og öfga í veðri um heim allan er þetta viðfangsefni ofarlega í hugum manna. Veðrið hefur áhrif á okkur; umhverfi okkar og andlega líðan og nú á tímum hnattrænnar hlýnunar og breytinga á veðurkerfum heimsins er það þungur biti að kyngja að við sjálf berum ábyrgð á því að miklu leyti. Listakonurnar nálgast viðfangsefnið hver með sínum hætti og sækja fanga í þjóðfræðilegar og mannfræðilegar heimildir, fornar sagnir, loftslagsvísindi, upplifanir og atburði líðandi stundar þar sem kjarninn er alltaf manneskjan frammi fyrir veðri. Sýningarskrá með viðtölum við fræðifólk og aðstandendur sýningarinnar verður fáanleg í afgreiðslu safnsins.

Í sýningunni Allt eitthvað sögulegt bregður Bára Kristinsdóttir upp næmri og heillandi mynd af heimi sem er að hverfa. Ljósmyndir hennar gefa innsýn í líf tveggja eldri manna á nælonhúðunar verkstæði á höfuðborgarsvæðinu þar sem tíminn hefur staðið í stað. Á árum áður var þetta fjölmennur vinnustaður þar sem reksturinn blómstraði og unnið var handvirkt upp á gamla mátann. En með nútímatækni kom að því að handverk þeirra var ekki lengur eftirsótt og fyrirtækið laut í lægra haldi fyrir kínverskri verksmiðjuframleiðslu sem yfirtekið hefur markaðinn. Ljósmyndabók um verkefnið kemur út á degi opnunarinnar, gefin út af Ramskram gallerí.

Á sýningartímabilinu verður boðið upp á fjölbreytta dagskrá. Sunnudaginn 2. september kl. 14 munu sýningarstjóri og listamenn leiða gesti um sýninguna Allra veðra von, og sunnudaginn 23. september kl. 14 verður Bára Kristinsdóttir með listamannsspjall.

Sjá nánar um sýningarnar hér og hér.

Allra veðra von er áttunda sýningin í haustsýningaröð Hafnarborgar þar sem hugmynd sýningarstjóra er valin úr innsendum tillögum. Áður hafa verið settar upp, sem hluti af sama verkefni, sýningar Ólafar Gerðar Sigfúsdóttur mannfræðings, Í bili, haustið 2011, sýning Guðna Tómassonar listsagnfræðings, SKIA, haustið 2012, sýning Önnu Maríu Bogadóttur arkitekts, Vísar-húsin í húsinu, haustið 2013, sýning Helgu Þórsdóttur, Rás, haustið 2014, sýning Aðalheiðar Valgeirsdóttur myndlistarmanns og listfræðings og Aldísar Arnardóttur listfræðings, Heimurinn án okkar, haustið 2015 og sýning Rúnu Thors, vöruhönnuðar, Hildar Steinþórsdóttur, arkitekts, Tilraun – leir og fleira, haustið 2016 og Málverk ekki miðill sem Jóhannes Dagsson, listheimspekingur sýningarstýrði haustið 2017.Með haustsýningaröðinni vill Hafnarborg skapa farveg fyrir áhugaverðar hugmyndir og vera vettvangur þar sem myndlist fær notið sín mótuð af fjölbreyttum viðhorfum og viðfangsefnum. Hafnarborg kallar nú eftir tillögum að haustsýningu árið 2019.

Frekari upplýsingar má nálgast á heimasíðu Hafnarborgar.

 

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 klukkutímum

„Það sem börn muna mest eftir eru ekki dýrustu gjafirnar“

„Það sem börn muna mest eftir eru ekki dýrustu gjafirnar“
433Sport
Fyrir 2 klukkutímum

Ungur drengur sem hefur misst föður sinn og ömmu fékk fallega heimsókn – Hefur reynst mömmu sinni klettur í gegnum erfið veikindi

Ungur drengur sem hefur misst föður sinn og ömmu fékk fallega heimsókn – Hefur reynst mömmu sinni klettur í gegnum erfið veikindi
Fókus
Fyrir 3 klukkutímum

Fullyrðir að barnabarn Presley sé líffræðileg móðir sonar John Travolta

Fullyrðir að barnabarn Presley sé líffræðileg móðir sonar John Travolta
433Sport
Fyrir 4 klukkutímum

United leitar til FIFA og telur að hafa verið brotið á sér á mánudag

United leitar til FIFA og telur að hafa verið brotið á sér á mánudag
Fréttir
Fyrir 6 klukkutímum

Jólabarnið Jasmina búin að fá nóg af fólki sem segir hana ekki aðlagast – „Mig langar stundum í einfalt Excel-skjal með skýrum viðmiðum“

Jólabarnið Jasmina búin að fá nóg af fólki sem segir hana ekki aðlagast – „Mig langar stundum í einfalt Excel-skjal með skýrum viðmiðum“
Fréttir
Fyrir 6 klukkutímum

Birgir sár út í Pál Óskar: „Þetta er lífsreynsla sem ég mun aldrei gleyma“

Birgir sár út í Pál Óskar: „Þetta er lífsreynsla sem ég mun aldrei gleyma“
Pressan
Fyrir 7 klukkutímum

Örlagarík Evrópuferð – Ókunnugi maðurinn í myndbandinu breytti lífi hennar árum seinna

Örlagarík Evrópuferð – Ókunnugi maðurinn í myndbandinu breytti lífi hennar árum seinna
EyjanFastir pennar
Fyrir 8 klukkutímum

Þorsteinn Pálsson skrifar: Víðsýn og frjálslynd hugsun endurvakin

Þorsteinn Pálsson skrifar: Víðsýn og frjálslynd hugsun endurvakin