fbpx
Laugardagur 27.apríl 2024

Listasafn Árnesinga hlaut Íslensku safnaverðlaunin 2018

Ragna Gestsdóttir
Miðvikudaginn 6. júní 2018 11:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Forseti Íslands Guðni Th. Jóhannesson afhenti Listasafni Árnesinga Íslensku safnaverðlaunin 2018 við hátíðlega athöfn á Bessastöðum í gær. Íslensku safnaverðlaunin er viðurkenning sem er veitt annað hvert ár íslensku safni fyrir framúrskarandi starfsemi.

Í greinagerð valnefndar segir að Listasafn Árnesinga bjóði upp á fjölbreyttar og metnaðarfullar sýningar sem veita gott aðgengi að myndlistararfi þeim sem það varðveitir. Safnið kynnir einstaka listamenn á einka- og samsýningum og hefur verið í samstarfi við önnur söfn um sýningar um árabil. Útgáfur safnsins eru til fyrirmyndar þar sem gefin er út vönduð sýningarskrá í tengslum við hverja sýningu, sem er mikilvæg heimild um starf og sýningar safnsins. Safnið heldur úti markvissu fræðslustarfi þar sem unnið er með mismunandi skólastigum, listamönnum, fræðimönnum og almenningi. Námskeið og smiðjur eru haldnar reglulega fyrir almenning þar sem gefst kostur á að vinna með mismunandi miðla í tengslum við sýningar safnsins.

Listasafn Árnesinga var á sínum tíma fyrsta listasafnið utan höfuðborgarsvæðisins sem opið var almenningi og hefur sýnt sig og sannað sem öflugt og framsækið listasafn.

Mat valnefndar er að sú áhersla í sýningarhaldi sem fylgir meginmarkmiði Listasafns Árnesinga um að efla áhuga, þekkingu og skilning almennings á sjónlistum sé til fyrirmyndar. Safnið beitir árangursríkum aðferðum í fræðslu með umræðum og uppákomum, sem bera vitni um metnað, fagmennsku og nýsköpun.

Listasafn Árnesinga, Grasagarðurinn í Reykjavík, og Varðveislu- og rannsóknasetur Þjóðminjasafns Íslands hlutu viðurkenningu fyrir tilnefningar til safnaverðlaunanna 2018. Tilkynnt var um tilnefningar til Safnaverðlaunanna 2018 í tilefni af Alþjóðlega safnadeginum í maí.

Valnefnd Íslensku safnaverðlaunanna 2018 skipa þau Margrét Sveinbjörnsdóttir, menningarmiðlari (formaður), Rannver H. Hannesson, varðveislustjóri Landsbókasafn Íslands  – Háskólabókasafn, Pétur Sörensson, forstöðumaður Safnastofnunar og Þóra Sigurbjörnsdóttir, verkefnastjóri safneignar, Hönnunarsafni Íslands sem tók við af Ólöfu Breiðfjörð, verkefnastjóra Menningarhúsanna í Kópavogi. Fulltrúi Byggðasafns Skagfirðinga sem hlaut verðlaunin 2016 var Sigríður Sigurðardóttir, fyrrum forstöðumaður.

Íslandsdeild Alþjóðaráðs safna (ICOM) og Félag íslenskra safna og safnmanna (FISOS) standa saman að Íslensku safnaverðlaununum sem er viðurkenning veitt annað hvert ár íslensku safni fyrir framúrskarandi starfsemi. Sem fyrr gátu almenningur, stofnanir og félagasamtök sent inn ábendingar um safn eða einstök verkefni á starfssviði safna sem þykja til eftirbreytni og íslensku safnastarfi til framdráttar.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 12 klukkutímum

Arsenal vill verðlauna hann með nýjum samningi

Arsenal vill verðlauna hann með nýjum samningi
Pressan
Fyrir 12 klukkutímum

Kennedy-fjölskyldan tekur skýra afstöðu gegn umdeildum fjölskyldumeðlimi

Kennedy-fjölskyldan tekur skýra afstöðu gegn umdeildum fjölskyldumeðlimi
433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Treyju Manchester United fyrir næsta tímabil lekið og stuðningsmenn eru gáttaðir

Treyju Manchester United fyrir næsta tímabil lekið og stuðningsmenn eru gáttaðir
Fókus
Fyrir 14 klukkutímum

Hvað varð um leikkonuna úr Shining sem sneri baki við Hollywood? – „Ég var stjarna“

Hvað varð um leikkonuna úr Shining sem sneri baki við Hollywood? – „Ég var stjarna“
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Liverpool og Feyenoord að ganga frá smáatriðum

Liverpool og Feyenoord að ganga frá smáatriðum
Pressan
Fyrir 16 klukkutímum

Rappari dæmdur til dauða

Rappari dæmdur til dauða
Fókus
Fyrir 18 klukkutímum

MeToo-byltingin nötrar eftir sláandi bakslag – Verður Weinstein laus allra mála?

MeToo-byltingin nötrar eftir sláandi bakslag – Verður Weinstein laus allra mála?
Fréttir
Fyrir 18 klukkutímum

Framsóknarmenn styðji ÁTVR og forvarnir – „Atlaga Sjálfstæðisflokksins að ÁTVR er ævintýraleg“

Framsóknarmenn styðji ÁTVR og forvarnir – „Atlaga Sjálfstæðisflokksins að ÁTVR er ævintýraleg“