fbpx
Fimmtudagur 26.júní 2025

Skítsæl kynjahlutverk og skuggi feðraveldisins

Bókardómur: Svartalogn

Kolbrún Bergþórsdóttir
Fimmtudaginn 15. desember 2016 22:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Líkt og í fyrri bókum sínum skrifar Kristín Marja Baldursdóttir um konur í nýjustu skáldsögu sinni, Svartalogni. Konur á flótta, þaggaðar konur, konur sem standa saman, bregðast hver annarri og sjálfum sér. Eftir að hafa skilið við mann sinn og verið sagt upp í skrifstofustarfi í Reykjavík sökum aldurs og reynsla hennar því ekki metin að verðleikum, er Flóru Garðarsdóttur plantað í þorpi á Vestfjörðum þar sem hún er fengin til að mála hús tengdaforeldra sonar síns. Á meðan leigir hún út íbúð sína til að afla tekna. Húsið skal mála hvítt að innan sem og að utan. Verkið gengur hægt enda reikar hugur Flóru þar sem hún íhugar öskuill kynhlutverk sitt og mat samfélagsins á henni. Sagan er full af áhugaverðum táknum sem tengjast og skarast á skemmtilega vegu og varpa ljósi á samfélagið og þegna þess. Þannig verður verkið, að mála húsið, að eins konar táknmynd fyrir andlegt ástand Flóru og eftir því sem verkið kemst lengra á veg breytist sálarástand og viðhorf Flóru að sama skapi.

Hvítur er skítsæll litur, eins og kvenleikinn

Hvers vegna málar maður hús? Hús þarf að mála svo þau drabbist ekki niður. Þau þurfa reglulegt viðhald. Það þarf að dytta að þessu og hinu, endursteina þau, skipta út fúnum gluggakörmum og lakka. Verkið verður enn vandasamara þegar mála á hús hvítt, sem er mjög óhentugur litur. Hann er skítsæll og hylur illa. Iðulega þarf að fara margar umferðir yfir lit með hvítum svo hann hylji og mun meira viðhald er nauðsynlegt með hvítum lit en öðrum litum. Raunar mætti segja að hvítur henti best sem bakgrunnur fyrir annað. Pappír skáldsins er hvítur áður en orðin koma á hann. Strigi listmálarans er einnig hvítur áður en hann er málaður með öðrum litum. Í Svartalogni verður hvítur að eins konar tákni fyrir kvenleikann og minnir þannig á hið táknræna hvíta blek sem kvenskáld bókmenntasögunnar eru oft sögð hafa skrifað með. Því líkt og á við um hvít hús, þá þarf að viðhalda kynhlutverkum og krefst það töluverðrar vinnu. Til þess að lappa upp á kvenleikann þarf að mála sig í framan, passa upp á vöxtinn, læra að ganga í hælum, láta hárið síkka og snyrta það reglulega, kunna sig, vera kurteis, brosa, … Þetta eru ritúöl og gjörningar sem þarf að endurtaka í sífellu, jafnvel á hverjum degi til þess að viðhalda standardinum, til þess að viðhalda kvenleikanum. Sama á við um karlmennsku sem er ekki síður erfitt hlutverk eins og kvenleiki. Með því að raka af sér hárið, hætta að mála sig og byrja að ganga í sniðlausum víðum flíkum, gerir Flóra uppreisn gegn samfélagslegu kynhlutverki sínu. En hún gerir sér smám saman grein fyrir því að kynhlutverk hennar er í raun ekki vandamálið heldur viðhorf samfélagsins og hennar sjálfrar gagnvart því. Þá verður það hennar hlutverk að sanna sig fyrir öðrum og ekki síst sjálfri sér.

Kerfi grundvallað á andstæðum

Titillinn Svartalogn, „… eins og heimamenn kölluðu himnesku kyrrðina sem verður þegar fjöllin þegjandalegu spegla sig í haffletinum svo hann verður svartur að lit, …“ (bls. 342) er líkt og táknmynd fyrir þann ósýnilega skugga sem feðraveldið svokallaða varpar á þegna samfélagsins og sést eingöngu þegar lognið sjaldgæfa kemur loks. Margir fá grænar bólur um leið og einhver nefnir feðraveldið á nafn og hvá; gera ráð fyrir að með því sé verið að saka karlmenn um meðvitaða kúgun á konum til þess að upphefja sjálfa sig og kyn sitt. Svo er auðvitað sjaldnast. Orðið er notað yfir það kerfi sem er innra með okkur öllum, sem stjórnar samfélaginu og sem við leyfum að stjórna samfélaginu. Kerfi sem hefur virkað hingað til, þó ekki áfallalaust.

Kerfið sem um ræðir er grundvallað á andstæðum. Fólki er skipt upp í kyn og þeim gefin hlutverk og andstæðir eiginleikar til þess að auka greinarmun á kynjunum. Þeir sem ekki leika hlutverk sín eru jaðarsettir og álitnir undarlegir og skrítnir. Konur sem raka af sér hárið og fara á barinn, líkt og Flóra gerir í upphafi sögunnar, eru kallaðar lessur, og karlmönnum sem ekki uppfylla sín hlutverk er líkt við konur, líkt og um sé að ræða skammarleg fúkyrði. Feðraveldið kemur í veg fyrir að karlar megi ekki gráta eða sýna fram á nokkurs konar veikleika, sem aftur veldur hærri sjálfsmorðstíðni hjá körlum en konum. Það er einnig valdur þess að konur þurfa að vera ungar og sýna karlmannlega eiginleika (en samt ekki of mikið) til þess að vera teknar alvarlega. Þegar fólk bregður út af vananum sem kerfið býður upp á, er það sjálfkrafa undirskipað og þaggað. Það er ekki endilega af völdum samfélagsins, þótt það gerist engu að síður oft, heldur gerist það frekar innra með einstaklingunum sjálfum. Fólkið fer að hafa eftirlit með sjálfu sér og refsar sér jafnvel sjálft fyrir „óviðeigandi“ hegðun. Þannig veldur kerfið því að margt hæfileikaríkt og gott fólk nær ekki að skína.

Snilldin týnist á jaðrinum

Skilyrðislaus hlýðni við feðraveldið getur hæglega orðið til þess að snilldin týnist á jaðrinum. En það er einmitt vandamálið í Svartalogni. Þar eru hæfileikaríkar konur í aðalhlutverkum sem fá ekki að blómstra vegna hlýðni sinnar við kerfið. Organistinn og tónskáldið Petra hefur drabbast niður í litlu bæjarfélagi á Vestfjörðum og fær ekki tækifæri til þess að fóðra hæfileika sína. Útlendingarnir Eva, Juane og Ania dylja innra með sér stórar og fallegar söngraddir en fela sig í móðurhlutverki, einsemd og ofbeldisfullum ástarsamböndum. Það er ekki fyrr en hvirfilvindurinn Flóra mætir á svæðið, sem eitthvað fer að gerast í málum hinna fjögurra hæfileikaríku kvenna, enda hefur Flóra nær engu að tapa, ekki starfinu, orðsporinu eða kvenleikanum og sýnir hinum hvernig á að rísa upp úr öskunni eins og Fönix. Konurnar neita að lifa í skugga fjallsins og hefja sig upp yfir það með tónlist sinni. Það má svo teljast afrek að hve miklu leyti Svartalogn, sem gæti auðveldlega orðið að kvikmynd vegna myndrænna eiginleika, fjallar um tónlist. Ljúfum tónum er listilega lýst í textanum og fá okkur til þess að endurskoða það hvort bækur séu ekki bara fyrirtaksmiðill fyrir tónlist.

Viðfangsefnið sem Kristín tekur sér fyrir hendur er ekki einfalt og hvítu þræðirnir sem hún vefur saman af kunnáttu í frásögninni, eru vandmeðfarnir og oft loðnir. Persónur eru allar vel skapaðar og áhugaverðar, eiga sér sína forsögu og framtíð. Frásögnin rennur ljúflega með fallegum ljóðrænum blæ. Það eina sem aftrar verkinu er lengd þess, en söguna hefði hæglega verið hægt að stytta, þó svo það megi færa rök fyrir því að lengdin gefi enn meiri tilfinningu fyrir löngum vestfirskum vetri. Kápuperrinn í gagnrýnanda var heldur ekkert að hrópa húrra fyrir hönnuninni en það er önnur saga.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 3 klukkutímum

Nýliðarnir stórhuga og vilja fyrrum markvörð PSG

Nýliðarnir stórhuga og vilja fyrrum markvörð PSG
Fréttir
Fyrir 3 klukkutímum

Trump er öskureiður og krefst breytinga – „Þetta kostar landið okkar milljarða“

Trump er öskureiður og krefst breytinga – „Þetta kostar landið okkar milljarða“
433Sport
Fyrir 12 klukkutímum

Ísland tapaði gegn Finnum

Ísland tapaði gegn Finnum
433Sport
Fyrir 12 klukkutímum

Kaupa íslenska landsliðsmanninn á hátt í 300 milljónir

Kaupa íslenska landsliðsmanninn á hátt í 300 milljónir
Fókus
Fyrir 14 klukkutímum

Sunneva var fórnarlamb ástarsvika og tapaði milljónum – „Hann varð partur af mínu lífi mjög hratt“

Sunneva var fórnarlamb ástarsvika og tapaði milljónum – „Hann varð partur af mínu lífi mjög hratt“
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Fyrrum undrabarnið að taka áhugavert skref til Danmerkur

Fyrrum undrabarnið að taka áhugavert skref til Danmerkur