fbpx
Fimmtudagur 19.febrúar 2026
Fókus

Ráð frá Helen Mirren

Kolbrún Bergþórsdóttir
Laugardaginn 3. júní 2017 20:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Breska leikkonan Helen Mirren er sjötíu og eins árs og því lífsreynd kona. Hún hélt nýlega ræðu í Tulane-háskólanum í New Orleans og gaf nemendum ráð. Hún ráðlagði þeim að hafa fimm reglur í heiðri og þá myndi þeim vel farnast.

Fyrsta reglan sem á að tryggja hamingjuríkt líf er að þjóta ekki í hjónaband og rugla alls ekki saman kynlífi og ást. Leikkonan gekk seint í hjónaband og er alsæl með mann sinn, bandaríska leikstjórann Taylor Hackford. Hún segir mikilvægt að styðja makann og gefa honum frelsi til að láta drauma sína rætast. Mirren og Hackford fagna tuttugu ára brúðkaupsafmæli í ár.

Regla númer tvö er að koma eins fram við alla, allir eigi rétt á að komið sé fram við þá af virðingu. Þriðja reglan er að láta sér á sama standa um þá sem dæma mann eftir útliti, sérstaklega ef viðkomandi er nafnleysingi á netinu. Fjórða reglan sem Helen Mirren nefndi er að óttast ekki óttann. „Kastið frá ykkur varkárni. Horfið í andstyggilegt andlit óttans og ryðjist áfram. Og þegar þið skjótist fram úr óttanum snúið ykkur við og sparkið í rassinn á honum,“ sagði Mirren. Fimmta og síðasta regla leikkonunnar er að forðast að flækja hlutina um of.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Í gær

Neitar harðlega að vera á fjárhagslegum spena foreldra sinna – „Ég er í 4 vinnum“

Neitar harðlega að vera á fjárhagslegum spena foreldra sinna – „Ég er í 4 vinnum“
Fókus
Í gær

Vilja ólmir fá Laufeyju í afmælið sitt – „Það er eitt sem mig hefur alltaf langað til að segja við þig“

Vilja ólmir fá Laufeyju í afmælið sitt – „Það er eitt sem mig hefur alltaf langað til að segja við þig“
Fókus
Fyrir 2 dögum

Z kynslóðin sleppir kynlífi og gerir þetta í staðinn

Z kynslóðin sleppir kynlífi og gerir þetta í staðinn
Fókus
Fyrir 2 dögum

Þættirnir Heated Rivalry hafa slegið í gegn og gert konur æstar í samkynhneigt klám – Sérfræðingar útskýra málið

Þættirnir Heated Rivalry hafa slegið í gegn og gert konur æstar í samkynhneigt klám – Sérfræðingar útskýra málið
Fókus
Fyrir 3 dögum

Lýsa kynlífinu fyrir og eftir þyngdartap Jelly Roll – „Hann var svo stór“

Lýsa kynlífinu fyrir og eftir þyngdartap Jelly Roll – „Hann var svo stór“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Fyrsti glæpurinn í sögu alþjóðlegu geimstöðvarinnar reyndist vera lygi – Hatursfull fyrrverandi eiginkona laug og fékk dóm

Fyrsti glæpurinn í sögu alþjóðlegu geimstöðvarinnar reyndist vera lygi – Hatursfull fyrrverandi eiginkona laug og fékk dóm
Fókus
Fyrir 5 dögum

66°Norður opnar Archive verslun í Kaupmannahöfn

66°Norður opnar Archive verslun í Kaupmannahöfn
Fókus
Fyrir 6 dögum

Selja og með opið hús á Valentínusardag

Selja og með opið hús á Valentínusardag