fbpx
Sunnudagur 09.nóvember 2025
Fókus

Eldur í Húnaþingi haldin í fimmtánda sinn

Bráðskemmtileg bæjarhátíð

Ragna Gestsdóttir
Mánudaginn 7. ágúst 2017 14:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Unglistarhátíðin Eldur í Húnaþingi var haldin síðustu helgina í júlí. Eins og venja er á bæjarhátíðum var margt í boði fyrir alla aldurshópa og nánast öll vinna unnin í sjálfboðavinnu af íbúum í héraðinu. Ákveðin hefð hefur skapast í kringum hátíðina og ákveðnir viðburðir sem skipað hafa sér fastan sess, en einnig mátti finna eitthvað nýtt og skemmtilegt við að vera.

Fjölskyldudagurinn var haldinn hátíðlegur á laugardeginum og gátu allir fundið eitthvað við sitt hæfi þar. Birta smellti af nokkrum myndum í góða veðrinu sem lék við hátíðargesti.

Það var tekið vel á því í reiptoginu.
Tekið fast á því Það var tekið vel á því í reiptoginu.
Það var bjart yfir bænum á bæjarhátiðinni.
Hvammstangi Það var bjart yfir bænum á bæjarhátiðinni.
Skreytt er í mismunandi litum eftir götum. Þess appelsínugulu dömu mátti finna á næsta horni við sjúkrahúsið.
Appelsínugul skúringakona Skreytt er í mismunandi litum eftir götum. Þess appelsínugulu dömu mátti finna á næsta horni við sjúkrahúsið.
Eydís Lára Þrastardóttir, ásamt frændsystkinum sínum, systkinunum Myrru Venus, Fanney Söndru og Eldon Dýra Albertsbörnum. Systkinin tilheyra stórum systkinahópi, alls tíu alsystkin og þrjú hálfsystkin.
Hluti af stórum systkinahópi Eydís Lára Þrastardóttir, ásamt frændsystkinum sínum, systkinunum Myrru Venus, Fanney Söndru og Eldon Dýra Albertsbörnum. Systkinin tilheyra stórum systkinahópi, alls tíu alsystkin og þrjú hálfsystkin.
Sólrún Guðfinna Rafnsdóttir og Mikael Þór Björnsson fengu viðurkenningu fyrir fallegasta garðinn, en þau búa á Strandgötu 2.
Eiga fallegasta garðinn Sólrún Guðfinna Rafnsdóttir og Mikael Þór Björnsson fengu viðurkenningu fyrir fallegasta garðinn, en þau búa á Strandgötu 2.
Vörubílar eru til margs nýtir, meðal annars sem svið á bæjarhátíðum.
Vörubíllinn er þarfaþing Vörubílar eru til margs nýtir, meðal annars sem svið á bæjarhátíðum.
Björn Þ. Sigurðsson (kallaður Bangsi), Baldur Skarphéðinsson, Þorvaldur Böðvarsson, Guðmundur Sigurðsson voru á spjalli þegar ljósmyndara bar að garði.
Spekingar spjalla Björn Þ. Sigurðsson (kallaður Bangsi), Baldur Skarphéðinsson, Þorvaldur Böðvarsson, Guðmundur Sigurðsson voru á spjalli þegar ljósmyndara bar að garði.
Ágúst Sigurðsson bílasafnari og sjúkraflutningamaður var mættur galvaskur á svæðið.
Menn pulsa sig upp Ágúst Sigurðsson bílasafnari og sjúkraflutningamaður var mættur galvaskur á svæðið.
Boðið var upp á andlitsmálun fyrir börnin, sem er alltaf vinsæl.
Stemning Boðið var upp á andlitsmálun fyrir börnin, sem er alltaf vinsæl.
Hinn endinn á reiptoginu.
Hinn endinn Hinn endinn á reiptoginu.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

Skildi ekkert í fáklæddu konunni við Skógafoss

Skildi ekkert í fáklæddu konunni við Skógafoss
Fókus
Fyrir 2 dögum

Fyrrum hertogaynjan sögð með peningaáhyggjur – Ætlar að afhjúpa leyndarmál konungsfjölskyldunnar

Fyrrum hertogaynjan sögð með peningaáhyggjur – Ætlar að afhjúpa leyndarmál konungsfjölskyldunnar
Fókus
Fyrir 2 dögum

Erla vill seinka klukkunni: „Með breytingunni gætu börn verið í dagsbirtu nánast alla skóladaga“

Erla vill seinka klukkunni: „Með breytingunni gætu börn verið í dagsbirtu nánast alla skóladaga“
Fókus
Fyrir 2 dögum

„Mennska Barbie“ látin aðeins 31 árs

„Mennska Barbie“ látin aðeins 31 árs
Fókus
Fyrir 3 dögum

„Við eigum aldrei að slaufa fólki fyrir skoðanir sínar og allra síst á ríkið að vera að stjórna því hvaða tjáning er leyfileg“

„Við eigum aldrei að slaufa fólki fyrir skoðanir sínar og allra síst á ríkið að vera að stjórna því hvaða tjáning er leyfileg“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Bókakonfekt Forlagsins hefst í kvöld

Bókakonfekt Forlagsins hefst í kvöld