fbpx
Sunnudagur 28.apríl 2024
Fókus

Þjáningarfull innlifun stórleikara

Daniel Day Lewis er hættur að leika

Kolbrún Bergþórsdóttir
Föstudaginn 30. júní 2017 22:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Einn hæfileikaríkasti leikari samtímans Daniel Day Lewis tilkynnti á dögunum að hann væri hættur að leika. Hann er eini leikarinn sem hefur unnið til þrennra Óskarsverðlauna fyrir leik í aðalhlutverki, fyrir My Left Foot, There Will Be Blood og Lincoln, og hlotið fjölmörg önnur verðlaun og viðurkenningar. Leikarinn hefur ekki gefið upp neina ástæðu fyrir þessari óvæntu ákvörðun sinni, en vitað er að kvikmyndaleikur hefur tekið mjög á hann því hann gefur sig allan í hlutverk sín og stundar mikla undirbúningsvinnu. Árið 1992 sagði hann í viðtali við Sunday Times að hugsanlega kæmist hann að því á dánarbeði hvort vinna hans sem leikari hefði haldið honum á lífi eða hreinlega drepið hann. Í sama viðtali sagði hann að hann óskaði þess innst inni að vakna einn daginn og hafa enga ástæðu til að halda áfram í vinnunni.

Sá hann draug?

Day Lewis er sonur Cecil Day Lewis, sem var lárviðarskáld Breta, og leikkonunnar Jill Balcon. Sem barn varð hann fyrir einelti í skóla og komst í vandræði fyrir búðarhnupl. Hann lagði snemma fyrir sig leiklist og lék á sviði en vakti fyrst verulega athygli árið 1985 fyrir leik sinn í myndinni My Beautiful Laundrette.

Árið 1989 þegar hann var að leika Hamlet í leikriti Shakespeares flúði hann skyndilega af sviðinu í atriðinu þegar vofa föður Hamlets birtist. Baksviðs brast hann í grát og harðneitaði að snúa aftur á sviðið. Annar leikari hljóp samstundis í skarðið. Day Lewis sagði að hann hefði séð látinn föður sinn á sviðinu. Seinna sagði hann að orð sín hefðu verið misskilin. Hann hefur ekki stigið á svið síðan og lék ekki í kvikmynd næstu fimm árin eftir atvikið.

Leikarinn hefur verið kvæntur Rebeccu Miller í tvo áratugi.
Verndar einkalíf sitt Leikarinn hefur verið kvæntur Rebeccu Miller í tvo áratugi.

Alltaf í karakter

Day Lewis er þekktur fyrir að lifa sig svo inn í hlutverk sín að hann sameinast persónunni. Ótal sögur eru til af þessu. Þegar hann lék hinn fjölfatlaða Christy Brown í My Left Foot stóð hann ekki upp úr hjólastólnum allan tímann sem tökur fóru fram og á matmálstímum var hann mataður með skeið. Við undirbúning fyrir hlutverk sitt sem IRA-fangi í The Name of the Father eyddi hann þremur nóttum í ísköldum fangaklefa. Á tökustað krafðist hann þess að vinnufélagar hans hreyttu í hann svívirðingum og helltu yfir hann köldu vatni. Þeir máttu ekki kalla hann sínu rétta nafni heldur nafni persónunnar sem hann lék. Tæknimaður sem hefur tvisvar unnið með Day Lewis segist aldrei hafa upplifað neitt þessu líkt og bætti við: „Þegar hann var að undirbúa sig fyrir atriði þar sem hann lenti í áflogum þá var hann ónotalegur við fólk. Þá var eins gott að vara sig á honum því hann gat verið ansi ógnvekjandi þegar hann var í karakter.“

Þessi mikla innlifun í hlutverk sín hefur tekið mjög á leikarann sem festist í hlutverki sínu og þarf síðan dágóðan tíma til að jafna sig. Day Lewis hafði því fyrir sið að taka sér góða hvíld milli hlutverka, jafnvel fimm ár.

Leikarinn lék Lincoln Bandaríkjaforseta á afar eftirminnilegan hátt og hreppti sín þriðju Óskarsverðlaun.
Í hlutverki forseta Leikarinn lék Lincoln Bandaríkjaforseta á afar eftirminnilegan hátt og hreppti sín þriðju Óskarsverðlaun.

Árið 1996 lék Day Lewis í kvikmyndinni The Crucible sem gerð var eftir leikriti Arthurs Miller. Þar hitti hann dóttur Miller, Rebeccu, og hún varð eiginkona hans. Hún er leikstjóri og hann lék undir hennar stjórn í kvikmyndinni The Ballad of Jack and Rose. Á þeim tíma sem upptökur fóru fram ákvað hann að búa fjarri eiginkonu sinni til að geta fangað einangrun persónu sinnar.

Hann sést hér með Meryl Streep.
Þrefaldur Óskarsverðlaunahafi Hann sést hér með Meryl Streep.

Forðast sviðsljósið

Day Lewis, sem er sextugur, hefur aldrei kunnað við sig í sviðsljósinu. Hann á hús í litlu þorpi á Írlandi þar sem hann býr ásamt konu sinni og tveimur sonum þeirra. Auk þess á leikarinn son með frönsku leikkonunni Isabelle Adjani.

Leikarinn er einstaklega hlédrægur og hefur haft nokkurn ama af frægð sinni. Nágranni leikarans segir að hann eigi greinilega erfitt með að takast á við frægðina og verði vandræðalegur þegar einhver ber kennsl á hann. Flestir skilji þó þörf hans fyrir einveru og láti hann í friði.

Vilhjálmur Bretaprins sló Day Lewis til riddara árið 2014. Árið 2012 útnefndi Time hann besta leikara heims. Sumir hafa gengið svo langt að segja Day Lewis mesta kvikmyndaleikara allra tíma.

Allt bendir nú til að myndin Phantom Thread, sem leikstýrt er af Paul Thomas Andersen, verði síðasta mynd Daniels Day Lewis, en hún verður frumsýnd snemma á næsta ári. Þar fer leikarinn með hlutverk breska hönnuðarins Charles James.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

Sophia Bush kemur út úr skápnum – Blæs á kjaftasögurnar um hvernig nýja sambandið byrjaði

Sophia Bush kemur út úr skápnum – Blæs á kjaftasögurnar um hvernig nýja sambandið byrjaði
Fókus
Fyrir 3 dögum

Svona eiga þau saman – Ekki aðeins æðislegir elskhugar heldur líka mjög góðir vinir

Svona eiga þau saman – Ekki aðeins æðislegir elskhugar heldur líka mjög góðir vinir