fbpx
Fimmtudagur 19.febrúar 2026
Fókus

Johnny Depp biðst afsökunar

Lét ósmekkleg ummæli falla um Bandaríkjaforseta

Einar Þór Sigurðsson
Laugardaginn 24. júní 2017 12:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Bandaríski stórleikarinn Johnny Depp hefur beðist afsökunar á ummælum sem hann lét falla um Donald Trump Bandaríkjaforseta.

Ummælin sem um ræðir lét Depp falla á Glastonbury-hátíðinni, en hann spurði hóp áhorfenda: „Hvenær gerðist það síðast að leikari drap Bandaríkjaforseta?“ Depp var staddur á hátíðinni þar sem mynd hans, The Libertine frá árinu 2004, var meðal annars sýnd.

Áhorfandi úr sal spurði hvort hann gæti ekki boðið Donald Trump á sýninguna en Depp svaraði um hæl og lét meðal annars þessi ummæli falla. Sagði hann að Trump þyrfti á hjálp að halda.

Leikarinn hefur nú sent frá sér yfirlýsingu þar sem hann biðst afsökunar á ummælum sínum. Þau hafi verið ósmekkleg og um hafi verið að ræða illa ígrundaðan brandara. „Ég kom þessu ekki frá mér eins og ég ætlaði og ætlaði ekki að móðga neinn. Ég var bara að reyna að vera fyndinn.“

Forsvarsmenn innan Hvíta hússins voru fljótir að gagnrýna ummæli Depps og bentu á að Trump hefði ítrekað fordæmt ofbeldi.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

Þættirnir Heated Rivalry hafa slegið í gegn og gert konur æstar í samkynhneigt klám – Sérfræðingar útskýra málið

Þættirnir Heated Rivalry hafa slegið í gegn og gert konur æstar í samkynhneigt klám – Sérfræðingar útskýra málið
Fókus
Fyrir 2 dögum

Óskarsverðlaunaleikarinn Robert Duvall látinn

Óskarsverðlaunaleikarinn Robert Duvall látinn
Fókus
Fyrir 3 dögum

Fyrsti glæpurinn í sögu alþjóðlegu geimstöðvarinnar reyndist vera lygi – Hatursfull fyrrverandi eiginkona laug og fékk dóm

Fyrsti glæpurinn í sögu alþjóðlegu geimstöðvarinnar reyndist vera lygi – Hatursfull fyrrverandi eiginkona laug og fékk dóm
Fókus
Fyrir 3 dögum

Mágkona Justin Bieber ákærð – Henti túrtappa í barþjón og sparkaði í punginn á öryggisverði

Mágkona Justin Bieber ákærð – Henti túrtappa í barþjón og sparkaði í punginn á öryggisverði
Fókus
Fyrir 5 dögum

Selja og með opið hús á Valentínusardag

Selja og með opið hús á Valentínusardag
Fókus
Fyrir 5 dögum

Steven Spielberg gaf 3 milljónir í söfnun fyrir fjölskylduna

Steven Spielberg gaf 3 milljónir í söfnun fyrir fjölskylduna