fbpx
Sunnudagur 22.mars 2026
Fókus

Borgarstjórinn brjálaður út í tónlistarkonuna – „Þessi unga kona mun aldrei fá að stíga á stokk“ 

Fókus
Sunnudaginn 22. mars 2026 12:14

Mynd/Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Tónlistarkonan Chappel Roan mun ekki koma fram á brasilísku tónlistarhátíðinni Todo Mundi No Rio, en hátíðin markaðssetur sig sem „heimsins stærsta dansgólf“.

Ekki nóg með það heldur hefur borgarstjóri Rio de Janeiro, Eduardo Cavalier, lýst því yfir að Roan muni ekki fá að stíga á stokk á hátíðinni á meðan hann hefur eitthvað um það að segja.

„Svo lengi sem ég er við völd í borg okkar mun þessi unga kona aldrei stíga á stokk á Todo Mundo no Rio.“

Þessi harða afstaða á rætur að rekja til atviks sem átti sér stað á dögunum, en Roan er sem stendur stödd í Brasilíu til að koma fram á Lollapalooza-hátíðinni. Samkvæmt knattspyrnumanninum Jorginho Frello veittist öryggisvörður tónlistarkonunnar að ungri dóttur hans fyrir tónleikana í gær. Dóttir Frello er mikill aðdáandi Roan svo hann ákvað að fara með hana á tónleikana. Hann lýsir því á Instagram að dóttir hans hafi verið að kafna úr spennu. Þau hafi gist á sama hóteli og Roan og gengið fram hjá tónlistarkonunni í morgunverðarsalnum. Dóttir hans hafi verið mjög prúð. Hún hafi vissulega horft á söngkonuna og brosað til hennar en svo hafi feðginin gengið að sínu borði og fengið sér sæti. Skyndilega kom öryggisvörður Roan að þeim og sakaði ungu stúlkuna um að hafa áreitt Roan og sýnt tónlistarkonunni vanvirðingu.

„Dóttir mín varð dauðhrædd og grét mikið. Til að vera hreinskilinn þá skil ég ekki hvar í heiminum það telst áreitni að ganga fram hjá borði og horfa.“

Borgarstjóranum Eduardo Cavalier var gróflega misboðið en hann skrifaði til Frello á Instagram og bauð dóttur hans að vera heiðursgestur á tónlistarhátíðinni, ólíkt Roan sem Cavalier hefur úthýst.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 3 dögum

Skandall mormónapiparjónkunnar setur raunveruleikaþáttaheiminn á hliðina – „Manni finnst bara kominn heimsendir“

Skandall mormónapiparjónkunnar setur raunveruleikaþáttaheiminn á hliðina – „Manni finnst bara kominn heimsendir“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Óskarsverðlaunakjólinn var saumaður utan á Paltrow – „Ég gat ekki pissað allt kvöldið“

Óskarsverðlaunakjólinn var saumaður utan á Paltrow – „Ég gat ekki pissað allt kvöldið“