fbpx
Fimmtudagur 19.mars 2026
Fókus

Bond-stúlkan segist hafa tapað milljörðum í svikamyllu

Fókus
Fimmtudaginn 19. mars 2026 19:30

Ursula Andress. Mynd/Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ursula Andress, svissneska leikkonan sem varð heimsfræg sem fyrsta Bond-stúlkan í Dr No árið 1962, glímir nú við alvarlegt fjárhagslegt og persónulegt áfall á efri árum.

Ursula, sem fagnar 90 ára afmæli sínu í dag, hefur lagt fram kæru vegna meints fjárdráttar fyrrverandi umboðsmanns síns, Eric Freymond. Eric þessi lést í fyrrasumar, 67 ára að aldri.

Samkvæmt erlendum fjölmiðlum, Mail Online þar á meðal, sakar Andress Eric um að hafa glatað eða ráðstafað stórum hluta eigna hennar án hennar vitundar eða samþykkis. Talið er að um 16 milljónir punda, 2,6 milljarðar króna, hafi tapast í röð vafasamra viðskipta, þar á meðal fjárfestingum í listaverkum sem leikkonan segir aldrei hafa séð eða fengið afhent. Heildarauður hennar hefur áður verið metinn á um þrjá milljarða króna.

Í umfjöllun Mail Online er vísað í viðtal hennar við þýska blaðið Blick þar sem hún segist vera í „rusli“ vegna málsins og telji sig hafa verið illa svikna af umboðsmanninum.

„Í átta ár var unnið markvisst að því að vinna traust mitt. Það var logið miskunnarlaust að mér og góðvild mín og traust misnotuð á sviksamlegan, jafnvel refsiverðan hátt, til að hafa af mér nær allar eigur mínar,” sagði hún meðal annars.

Lögmenn Uruslu eru sagðir hafa staðfest að meint svik séu af óvenjulegri stærðargráðu og flækjustigi og rannsókn standi yfir hjá yfirvöldum í kantónunni Vaud í Sviss.

Freymond hafði áður verið bendlaður við meintan fjárdrátt úr arfi franska Hermès-erfingjans Nicolas Puech. Freymond lést skömmu eftir yfirheyrslur vegna málsins.

Andress naut mikillar velgengni á ferli sínum og varð alþjóðlegt kyn­tákn eftir leik sinn í Dr. No. Á síðari árum hefur hún að mestu haldið sig utan sviðsljóssins.

Síðasta kvikmyndahlutverk hennar var í svissneskri mynd árið 2005 og árið 2017 seldi hún heimili sitt í Beverly Hills. Hún heldur nú tvö heimili, annars vegar í Róm og hins vegar í Gstaad í Sviss.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 22 klukkutímum
Bonnie Blue í bobba
Fókus
Fyrir 2 dögum

Glímdu við óútskýrða ófrjósemi en svo gaf læknir þeim ráð sem breytti öllu

Glímdu við óútskýrða ófrjósemi en svo gaf læknir þeim ráð sem breytti öllu
Fókus
Fyrir 2 dögum

Rokkstjarnan bað unnustunnar svamlandi með risastórum hákörlum

Rokkstjarnan bað unnustunnar svamlandi með risastórum hákörlum
Fókus
Fyrir 2 dögum

Beggi með ráð um hvernig þú bregst við áliti annarra – „Þetta er kannski ekki vinsæl skoðun“

Beggi með ráð um hvernig þú bregst við áliti annarra – „Þetta er kannski ekki vinsæl skoðun“
Fókus
Fyrir 2 dögum

Óskarinn: Myndirnar sem hefðu átt að vinna en unnu ekki

Óskarinn: Myndirnar sem hefðu átt að vinna en unnu ekki
Fókus
Fyrir 3 dögum

Segir stjörnurnar blindar á hversu grannar þær eru: Vara við vannæringu og vöðvarýrnun – „Hvenær er grannt of grannt?“

Segir stjörnurnar blindar á hversu grannar þær eru: Vara við vannæringu og vöðvarýrnun – „Hvenær er grannt of grannt?“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Mikill hraði og streita farin að birtast í heilsuleysi hjá stórum hópi Íslendinga

Mikill hraði og streita farin að birtast í heilsuleysi hjá stórum hópi Íslendinga
Fókus
Fyrir 3 dögum

One Battle After Another besta myndin og hlaut flest Óskarsverðlaun – Sinners með fáar styttur þrátt fyrir met í fjölda tilnefninga

One Battle After Another besta myndin og hlaut flest Óskarsverðlaun – Sinners með fáar styttur þrátt fyrir met í fjölda tilnefninga
Fókus
Fyrir 3 dögum

Óskarinn uppskeruhátíð kvikmyndanna – Stjörnurnar stórglæsilegar á rauða dreglinum

Óskarinn uppskeruhátíð kvikmyndanna – Stjörnurnar stórglæsilegar á rauða dreglinum