fbpx
Miðvikudagur 25.febrúar 2026
Fókus

Enn einn harmurinn í lífi Martin Short

Fókus
Miðvikudaginn 25. febrúar 2026 10:34

Martin Short og Nancy Dolan ásamt börnum sínum, Oliver og Katherine. Myndin er tekin árið 1989. Mynd/Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Katherine Short, dóttir bandaríska leikarans Martin Short, er látin, 42 ára að aldri. Tilkynnt var um andlát hennar í gær en talið er að hún hafi fallið fyrir eigin hendi.

„Það er með djúpri sorg sem við staðfestum fráfall Katherine Hartley Short,“ sagði í yfirlýsingu sem barst frá fjölskyldunni síðdegis í gær.

„Short-fjölskyldan er harmi slegin vegna þessa missis og biður um næði á þessum tíma. Katherine var elskuð af öllum og verður minnst fyrir ljósið og gleðina sem hún færði heiminum.“

Short ættleiddi Katherine og bræður hennar, Oliver og Henry, með eiginkonu sinni, Nancy Dolman, sem lést árið 2010 eftir baráttu við krabbamein í eggjastokkum. Þau höfðu verið gift í 30 ár þegar hún lést.

Í ævisögu sinni, sem kom út árið 2014, lýsti hann andláti Nancy sem því „langversta“ sem hann hefði gengið í gegnum og hefur hann þó gengið í gegnum ýmislegt á sínum 75 árum.

Short, sem er fæddur í Hamilton í Kanada, missti báða foreldra sína ungur. Hann átti þrjá bræður: David, Michael og Brian og eina systur, Noru. Árið 1962, þegar Short var aðeins 12 ára, lést elsti bróðir hans, David, í bílslysi í Montreal.

Sex árum síðar lést móðir hans, Olive, eftir langa baráttu við krabbamein og tveimur árum síðar lést faðir hans af völdum heilablóðfalls. Þegar þarna var komið sögu var Short ekki orðinn tvítugur.

„Tvítugur vissi ég hluti um líf og dauða og missi sem vinir mínir þekktu ekki. Ég veit ekki af hverju þetta eyðilagði mig ekki,“ sagði hann nýlega við Hollywood Reporter og bætti við að í áföllum væri tvennt í stöðunni; láta þau styrkja mann eða brjóta mann.

Martin Short hefur komið víða við á ferli sínum í leiklist en nú síðast lék hann í gamanþáttunum vinsælu Only Murders in the Building ásamt góðvini sínum Steve Martin. Þá er hann þekktur fyrir myndirnar Three Amigos, Father of the Bride, Clifford og Innerspace svo nokkrar séu nefndar.

Ef ein­stak­ling­ar glíma við sjálfs­vígs­hugs­an­ir er bent á Hjálp­arsíma Rauða kross­ins 1717 og netspjall Rauða krossins 1717.is. Opið allan sólarhringinn. Einnig má hafa sam­band við Píeta-sam­tök­in sem veita ókeyp­is ráðgjöf í síma 552-2218, allan sólarhringinn. Netspjall Heilsuveru þar sem svarar hjúkrunarfræðingur er líka opið frá kl.8-22 alla daga. Fyrir þau sem misst hafa ástvin í sjálfsvígi má fá stuðning í sorg hjá Sorgarmiðstöð og hjá Pieta samtökunum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 20 klukkutímum

Hödd komin á Ísland í dag – Á skjánum eftir langt hlé

Hödd komin á Ísland í dag – Á skjánum eftir langt hlé
Fókus
Fyrir 20 klukkutímum
Mate flytur sig um set
Fókus
Fyrir 5 dögum

Eric Dane er látinn

Eric Dane er látinn
Fókus
Fyrir 5 dögum

Dánarorsök Pulp Fiction leikarans opinberuð

Dánarorsök Pulp Fiction leikarans opinberuð