

Catherine glímdi þar að auki við krabbamein í endaþarmi og var það skráð sem undirliggjandi sjúkdómur.
Á dánarvottorðinu kemur enn fremur fram að Catherine hafi verið brennd og aska hennar afhent eiginmanni hennar, , sviðs- og framleiðsluhönnuðinum og leikstjóranum Robert Welch.
Catherine, sem var þekktust fyrir hlutverk sín í Home Alone, Schitt’s Creek og Beetlejuice, lést seint í janúar eftir að hafa verið flutt á sjúkrahús vegna öndunarerfiðleika.
Hún hafði ekki greint opinberlega frá neinum heilsuvanda og óljóst er hversu lengi hún hafði barist við krabbamein, að því er ABC News greinir frá.