fbpx
Þriðjudagur 17.febrúar 2026
Fókus

Segir Færeyinga þurfa á Íslendingabók að halda

Fókus
Miðvikudaginn 4. febrúar 2026 09:30

Vivian Ólafsdóttir. Mynd: Skjáskot YouTube.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Eru þeir ekki með svona Íslendingabók af því þeir þyrftu svo sannarlega á því að halda. Talandi um það þá er svona „inbreed“ veiki sem kallast Færeyska veikin og finnst eiginlega bara í Færeyjum. Börnin fæðast rosalega fötluð og ná oftast engum aldri,“

segir leikkonan Vivian Ólafsdóttir í viðtali í Fullorðins. Vivian á ættir að rekja til Færeyja, þar sem móðir hennar er færeysk og faðir hennar hennar íslenskur.

Í viðtalinu segir Vivian að Færeyingar þyrftu á svipuðum vef að halda og Íslendingabók, svo þeir geti rakið skyldleika sinn við aðra einstaklinga.

„Bróðir mömmu minnar er sá eini í systkinahópnum sem fann sér færeyskan maka og hún er ekki náskyld okkur, en auðvitað einhver frænka aftur í ættir. Ef þau eignast barn þá eru 75% líkur á að barnið sé með færeysku veikina. Þau hafa eignast fjögur börn og það er bara eitt lifandi í dag. Það er rosalegt.“

Segir Vivian að það sé hverju samfélagi þarft að fá blandast. Því meira sem við blöndumst sem mannkyn því sterkara verður genið okkar.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 3 dögum

66°Norður opnar Archive verslun í Kaupmannahöfn

66°Norður opnar Archive verslun í Kaupmannahöfn
Fókus
Fyrir 3 dögum

Selja og með opið hús á Valentínusardag

Selja og með opið hús á Valentínusardag
Fókus
Fyrir 5 dögum

James Van Der Beek er látinn

James Van Der Beek er látinn
Fókus
Fyrir 5 dögum

Ráðist á unnustu rokkgoðsagnarinnar

Ráðist á unnustu rokkgoðsagnarinnar