fbpx
Mánudagur 23.mars 2026
Fókus

Tvífari Jeffrey Epstein neyðist til að stíga fram og leiðrétta útbreiddan misskilning

Fókus
Mánudaginn 23. mars 2026 06:30

Palm Beach Pete á rúntinum.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Karlmaður í Flórída í Bandaríkjunum hefur neyðst til að stíga fram og taka af öll tvímæli um að hann er ekki Jeffrey Epstein.

Myndband af kappanum hefur farið sem eldur í sinu um netið og er ástæðan sú að hann þykir sláandi líkur hinum látna og alræmda Jeffrey Epstein.

Myndbandið sýnir manninn aka um í sportbíl eftir hraðbraut í Flórída og heyrist sá sem tók myndbandið upp öskra að Epstein sé enn á lífi. Upptakan vakti mikla athygli á netinu og var nóg til að hrinda af stað samsæriskenningum um að Epstein sé enn á lífi.

Ökumaðurinn, sem hefur verið kallaður „Palm Beach Pete“ á samfélagsmiðlum, sagðist sjálfur hafa verið óviðbúinn viðbrögðunum.

Í myndskeiði sem hann birti síðar á Instagram sagðist hann hafa áttað sig á vinsældunum þegar síminn hans „fór yfir um“ vegna fjölda skilaboða eftir að myndbandið fór í dreifingu.

Þar lagði hann áherslu á að hann væri ekki Epstein heldur ósköp venjulegur borgari. „Ég er ekki Jeffrey Epstein. Ég er Palm Beach Pete!“

Jeffrey Epstein lést í fangelsi í Manhattan árið 2019. Dauði hans var opinberlega úrskurðaður sjálfsvíg en ýmsum samsæriskenningum hefur verið varpað fram, ýmist að hann hafi verið myrtur eða andlát hans sviðsett.

Áhugi almennings á málefnum Epsteins hefur ekki minnkað eftir að bandarísk stjórnvöld birtu ógrynni gagna sem tengjast rannsókn á umfangsmiklum brotum hans.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Ari Leifsson nálgast Val
Fókus
Fyrir 3 dögum

„Ég er greinilega ekki bara einhver kennitala, fólki er í alvörunni ekki sama“

„Ég er greinilega ekki bara einhver kennitala, fólki er í alvörunni ekki sama“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Sýnir afleiðingar andlitslyftingar – „Falleg manneskja fyrir aðgerðina“

Sýnir afleiðingar andlitslyftingar – „Falleg manneskja fyrir aðgerðina“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Marvel-leikarinn biðst afsökunar á ummælum sem sármóðguðu aðdáendur síðasta sumar – „Ég biðst innilega afsökunar“

Marvel-leikarinn biðst afsökunar á ummælum sem sármóðguðu aðdáendur síðasta sumar – „Ég biðst innilega afsökunar“
Fókus
Fyrir 5 dögum

Glímdu við óútskýrða ófrjósemi en svo gaf læknir þeim ráð sem breytti öllu

Glímdu við óútskýrða ófrjósemi en svo gaf læknir þeim ráð sem breytti öllu
Fókus
Fyrir 6 dögum

Katrín Edda flytur heim eftir 14 ár erlendis – Fer yfir stöðuna, hvar þau ætla að búa og hvers vegna

Katrín Edda flytur heim eftir 14 ár erlendis – Fer yfir stöðuna, hvar þau ætla að búa og hvers vegna
Fókus
Fyrir 6 dögum

Beggi með ráð um hvernig þú bregst við áliti annarra – „Þetta er kannski ekki vinsæl skoðun“

Beggi með ráð um hvernig þú bregst við áliti annarra – „Þetta er kannski ekki vinsæl skoðun“