fbpx
Laugardagur 28.mars 2026
Pressan

Spádómar Baba Vanga fyrir 2026 vekja óhug – Heimsstyrjöld og Pútín á útleið

Pressan
Sunnudaginn 22. mars 2026 22:00

Þetta er hin eina sanna Baba Vanga.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Gamall spádómur frá Baba Vanga um þriðju heimsstyrjöldina hefur dúkkað upp hvað eftir annað að undanförnu og hefur hrætt marga netnotendur.

Baba Vang er oft nefnd „Nostradamus Balkanríkjanna“. Hún var blind og bjó við mikla fátækt. Margir leggja trú á spádóma hennar og telja hana hafa spáð rétt fyrir um margt.

Hún er meðal annars sögð hafa spáð fyrir um þriðju heimsstyrjöldina, alþjóðlegar krísur og öfgakennda atburði.

Mirror segir að meðal óhugnanlegustu spádóma hennar sé að stór alþjóðleg deila geti komið upp á þessu ári og að mörg stórveldi séu aðilar að henni.

Mirror segir að túlkun á spádómum Baba Vanga feli meðal annars í sér að stórt stríð brjótist út og breiðist út til margra heimsálfa og valdi löngu tímabili með pólitískum óstöðugleika og spennu á alþjóðavettvangi. Segir Mirror að þessi spádómur hafi fengið mikla athygli að undanförnu í tengslum við hina miklu spennu sem ríkir á alþjóðavettvangi.

Ein af þeim túlkunum á spádómum Vanga, sem mest er rædd núna, er að Kína, Rússland og Bandaríkin verði viðriðin krísu. Telja sumir að þetta megi túlka sem svo að Kína innlimi Taívan og að til beinna átaka komi á milli Bandaríkjanna og Rússlands sem muni auka spennu á alþjóðavettvangi enn frekar.

Vanga er einnig sögð hafa spáð fyrir um efnahagslegt umrót og túlka sumir þessa spá sem svo að alþjóðleg fjármálakreppa skelli á eða djúp efnahagslægð. Þetta gæti valdið óróleika á fjármálamörkuðum, hárri verðbólgu og efnahagserfiðleikum í mörgum ríkjum.

Hún er einnig sögð hafa sett fram spádóm um rússnesk stjórnmál á árinu. Er hún sögð hafa spáð fyrir um að nýr leiðtogi stígi fram á sjónarsviðið í kringum 2026, manneskja sem muni hafa mikil áhrif í alþjóðlegum stjórnmálum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Varpar sprengju sem gæti sett málið gegn meintum banamanni Charlie Kirk í uppnám – „Sögðu að við ættum ekki að rannsaka þetta nánar“

Varpar sprengju sem gæti sett málið gegn meintum banamanni Charlie Kirk í uppnám – „Sögðu að við ættum ekki að rannsaka þetta nánar“
Pressan
Fyrir 2 dögum

Kartafla vakti mikinn óhug – „Brenndu þetta til dauða“

Kartafla vakti mikinn óhug – „Brenndu þetta til dauða“
Pressan
Fyrir 3 dögum

Enn þreytt eftir fullan nætursvefn? – Sérfræðingur segir þetta ástæðuna

Enn þreytt eftir fullan nætursvefn? – Sérfræðingur segir þetta ástæðuna
Pressan
Fyrir 3 dögum

Vaknaði upp við vondan draum eftir að eltihrellirinn braust inn til að sjúga á henni tærnar

Vaknaði upp við vondan draum eftir að eltihrellirinn braust inn til að sjúga á henni tærnar
Pressan
Fyrir 4 dögum

„Ég klúðraði þessu“ – Hljóðupptaka varpar ljósi á hið hörmulega slys

„Ég klúðraði þessu“ – Hljóðupptaka varpar ljósi á hið hörmulega slys
Pressan
Fyrir 5 dögum

Danskar konur gagnrýna að Svíar hafi fylgt fordæmi Dana

Danskar konur gagnrýna að Svíar hafi fylgt fordæmi Dana
Pressan
Fyrir 5 dögum

Stephen Hawking með dökka spá áður en hann lést – Gæti orðið heimsendir

Stephen Hawking með dökka spá áður en hann lést – Gæti orðið heimsendir
Pressan
Fyrir 5 dögum

Fengu allar tölur réttar í lottóinu og töldu sig hafa unnið 6,2 milljarða – Fengu ekki einn eyri

Fengu allar tölur réttar í lottóinu og töldu sig hafa unnið 6,2 milljarða – Fengu ekki einn eyri