fbpx
Sunnudagur 22.mars 2026
Fókus

Leikarinn með átakanlega játningu – „Þetta hefur fengið mig til að loka mig af“

Fókus
Sunnudaginn 22. mars 2026 13:38

Mynd/Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Írski leikarinn Barry Keoghan segist varla vilja fara út úr húsi lengur út af linnulausu níði sem hann verður fyrir á netinu. Leikarinn kom með þessa átakanlegu játningu í þættinum Morning Mash Up á föstudaginn.

„Það er mikið af hatri á netinu, mikið af níði hvað útlit mitt varðar,“ sagði leikarinn sem er 33 ára gamall. Hann tekur fram að hann eigi dygga og góða aðdáendur en það séu skuggahliðar á netinu og fara þær ekki fram hjá honum. Verst þykir honum að sonur hans, sem er aðeins 3 ára gamall, muni geta lesið þetta þegar hann verður eldri.

Keoghan segir að níðið sé farið að hafa svo mikil áhrif á hann að það hefur bitnað á félagslífi hans. Hann treystir sér ekki lengur til að vera virkur á samfélagsmiðlum en verandi mennskur sé erfitt að standast freistinguna að lesa hvað fólk hefur um hann að segja eftir að hann mætir á viðburði fyrir fræga.

„Mig langar að sjá hvernig mér var tekið, og það er bara ekki fallegt. Þetta hefur fengið mig til að loka mig af, ég er orðinn innrænn, vil ekki mæta á viðburði og vil ekki fara út úr húsi.“

Þetta sé að verða raunverulegt vandamál, hann sé eiginlega orðinn félagsfælinn og það sem verra er þá finnst honum orðið óþægilegt að stunda starf sitt. Hann vill ekki vera á stóra skjánum því það gefur högg á honum.

Keoghan er þekktur fyrir leik sinn í kvikmyndunum Saltburn og The Batman svo dæmi séu tekin en líklega er hann þekktast fyrir hlutverk sitt í þáttunum Peaky Blinders.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

Fjölmiðlamaðurinn móðgaðist út í karlmennsku-áhrifavald og strunsaði út úr sínu eigin viðtali – „Ég tek ekki þátt í þessu“

Fjölmiðlamaðurinn móðgaðist út í karlmennsku-áhrifavald og strunsaði út úr sínu eigin viðtali – „Ég tek ekki þátt í þessu“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Skandall mormónapiparjónkunnar setur raunveruleikaþáttaheiminn á hliðina – „Manni finnst bara kominn heimsendir“

Skandall mormónapiparjónkunnar setur raunveruleikaþáttaheiminn á hliðina – „Manni finnst bara kominn heimsendir“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Hægt strandarhlaup í aðskornum eldrauðum sundfatnaði snýr aftur á skjáinn – Þetta er nýr leikarahópur Baywatch

Hægt strandarhlaup í aðskornum eldrauðum sundfatnaði snýr aftur á skjáinn – Þetta er nýr leikarahópur Baywatch
Fókus
Fyrir 3 dögum

Keith Urban sagður í áfalli yfir meintu daðri Nicole Kidman við mótleikara sinn

Keith Urban sagður í áfalli yfir meintu daðri Nicole Kidman við mótleikara sinn
Fókus
Fyrir 5 dögum

Sandra og Heimir selja í Hveragerði og flytja sig um set

Sandra og Heimir selja í Hveragerði og flytja sig um set
Fókus
Fyrir 5 dögum

Skúffuð yfir að önnur heiðraði minningu Robert Redford -„Ég hef meira að segja“

Skúffuð yfir að önnur heiðraði minningu Robert Redford -„Ég hef meira að segja“