

Ursula, sem fagnar 90 ára afmæli sínu í dag, hefur lagt fram kæru vegna meints fjárdráttar fyrrverandi umboðsmanns síns, Eric Freymond. Eric þessi lést í fyrrasumar, 67 ára að aldri.
Samkvæmt erlendum fjölmiðlum, Mail Online þar á meðal, sakar Andress Eric um að hafa glatað eða ráðstafað stórum hluta eigna hennar án hennar vitundar eða samþykkis. Talið er að um 16 milljónir punda, 2,6 milljarðar króna, hafi tapast í röð vafasamra viðskipta, þar á meðal fjárfestingum í listaverkum sem leikkonan segir aldrei hafa séð eða fengið afhent. Heildarauður hennar hefur áður verið metinn á um þrjá milljarða króna.
Í umfjöllun Mail Online er vísað í viðtal hennar við þýska blaðið Blick þar sem hún segist vera í „rusli“ vegna málsins og telji sig hafa verið illa svikna af umboðsmanninum.
„Í átta ár var unnið markvisst að því að vinna traust mitt. Það var logið miskunnarlaust að mér og góðvild mín og traust misnotuð á sviksamlegan, jafnvel refsiverðan hátt, til að hafa af mér nær allar eigur mínar,” sagði hún meðal annars.
Lögmenn Uruslu eru sagðir hafa staðfest að meint svik séu af óvenjulegri stærðargráðu og flækjustigi og rannsókn standi yfir hjá yfirvöldum í kantónunni Vaud í Sviss.
Freymond hafði áður verið bendlaður við meintan fjárdrátt úr arfi franska Hermès-erfingjans Nicolas Puech. Freymond lést skömmu eftir yfirheyrslur vegna málsins.
Andress naut mikillar velgengni á ferli sínum og varð alþjóðlegt kyntákn eftir leik sinn í Dr. No. Á síðari árum hefur hún að mestu haldið sig utan sviðsljóssins.
Síðasta kvikmyndahlutverk hennar var í svissneskri mynd árið 2005 og árið 2017 seldi hún heimili sitt í Beverly Hills. Hún heldur nú tvö heimili, annars vegar í Róm og hins vegar í Gstaad í Sviss.