

Hjónin Alda Sigmundsdóttir rithöfundur og fyrirlesari, og Erlingur Páll Ingvarsson listamaður hafa sett íbúð sína á Framnesvegi á sölu.
„Fallega íbúðin okkar er nú komin í sölu. Hún er á frábærum stað í Vesturbænum, stutt í yndislega náttúru, skóla, miðbæinn sem og alla þá þjónustu sem býðst á Grandanum svo aðeins nokkuð sé nefnt.“

Íbúðin er 116,5 fm á 1. hæð í húsi byggðu árið 1964.

Íbúðin skiptist í forstofu, stofu, eldhús, fjögur svefnherbergi, baðherbergi og þvottahús.

Nánari upplýsingar um eignina má finna hér.
