fbpx
Fimmtudagur 12.febrúar 2026
Fókus

James Van Der Beek er látinn

Fókus
Miðvikudaginn 11. febrúar 2026 19:51

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hjartaknúsarinn James Van Der Beek, sem sló í gegn í unglingaþáttunum Dawson’s Creek skömmu fyrir aldamótin, er látinn 48 ára að aldri. Hann lætur eftir sig eiginkonu og sex börn.

Eiginkona hans, Kimberly Van Der Beek, greinir frá andlátinu á Instagram.

„Okkar ástkæri James David Van Der Beek lést friðsamlega í morgun. Hann horfðist í augu við sína síðustu daga af hugrekki, trúfestu og auðmýkt. Það er ótrúlega mörgu sem á eftir að deila varðandi óskir hans, ást hans til mannkynsins og hversu heilagur tíminn er. Sá tími mun koma. Að svo stöddu biðjum við um frið til að syrgja ástkæran eiginmann, föður, son, bróður og vin.“

Leikarinn greindi frá því árið 2024 að hann hefði greinst með ristilkrabbamein. Hann sagðist þá vongóður og hafa það eftir atvikum gott. Krabbameinið uppgötvaðist í ristilspeglun í ágúst árið 2023. Leikarinn sagðist ekki hafa talið sig veikan þegar hann fór í speglunina en eftir að hann greindist áttaði hann sig á því að hann hafði fundið fyrir einkennum meinsins, helst breytingum á hægðum.

„Ég hugsaði með mér að ég þyrfti að taka til í mataræðinu, kannski hætta að drekka kaffi, kannski að sleppa því að setja mjólk í kaffið. Svo tók ég þetta út úr mataræðinu en ekkert breyttist og þá áttaði ég mig á því að ég þyrfti að láta skoða þetta.“

Hann sagðist staðráðinn í því að sigra meinið og sá fyrir sér að þetta yrði lærdómsferðalag.

„Ég hef svo mikið að lifa fyrir og þetta er svo fallegt líf.“

Sjá einnig: James Van Der Beek greindur með ristilkrabbamein

Leikarinn fæddist í Connecticut árið 1977 og lék sitt fyrsta hlutverk sem unglingur í skólasýningu á leikritinu Grease. Það voru þó unglingaþættirnir Dawson’s Creek sem áttu eftir að breyta lífi hans til frambúðar en þar fór hann með aðalhlutverkið.

People greinir frá. 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

Sjáðu Super Bowl auglýsingarnar 2026 – Rándýr stjörnum prýdd auglýsingapláss

Sjáðu Super Bowl auglýsingarnar 2026 – Rándýr stjörnum prýdd auglýsingapláss
Fókus
Fyrir 2 dögum

Einbýlishús með leynisundlaug til sölu í Mosfellsbæ

Einbýlishús með leynisundlaug til sölu í Mosfellsbæ
Fókus
Fyrir 1 viku

Kim Kardashian í eldheitu ástarsambandi með heimsfrægum kærasta

Kim Kardashian í eldheitu ástarsambandi með heimsfrægum kærasta
Fókus
Fyrir 1 viku

Ákveðin tegund fíknar virðist vera á uppleið – Svipuð dópamínáhrif og af kókaíni

Ákveðin tegund fíknar virðist vera á uppleið – Svipuð dópamínáhrif og af kókaíni