fbpx
Fimmtudagur 22.maí 2025
Fókus

Missti helming líkamsþyngdar sinnar á Ozempic – Þetta gerðist þegar hún hætti á lyfinu

Fókus
Fimmtudaginn 22. maí 2025 13:35

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Írska móðirin Ashley O‘Driscoll hafði lengi reynt að léttast, síðan hún eignaðist barn fyrir sextán árum síðan. Hún prófaði ýmislegt, eins og að hreyfa sig meira og borða minna, en ekkert gekk. Hún segir í samtali við Metro að heilsan var orðin slæm og sjálfsmyndin einnig.

Hún ákvað að prófa Ozempic, lyf sem upphaflega var þróað fyrir þau sem þjást af sykursýki en hefur reynst byltingarkennt í baráttunni við aukakílóin.

Ashley viðurkennir að hún hafi ekki verið alveg sannfærð um að þetta myndi virka, þar sem hún hafði reynt svo margt í gegnum árin.

En meðferðin virkaði vel og missti hún um helming líkamsþyngdar sinnar.

„Þetta var frábært, kílóin hrundu af mér og ég tók fljótt eftir því að „matarhljóðið“ (e. food noise) hvarf,“ segir hún. „Maður er ekki stöðugt að hugsa um næstu máltíð. Matarlystin minnkar og maður er saddur lengur.“

Þó að hún hafi verið mjög ánægð með árangurinn þá voru ný vandamál, eins og laus húð um allan líkama.

Fékk gallsteina

Síðasta sumar fékk Ashley gallsteina, hálfu ári áður en hún hætti að taka Ozempic. Hún segist ekki kenna lyfinu um, heldur geti hratt þyngdartap valdið þessu. Gallblaðran var fjarlægð í júlí og hélt hún áfram á þyngarstjórnunarlyfinu.

Hætti á lyfinu

Ashley þurfti að hætta á lyfinu vegna fjárhagserfiðleika í nóvember í fyrra. Hún eyddi rúmlega 850 þúsund krónum á tveimur árum í Ozempic. En fljótlega byrjaði hún að þyngjast aftur og varð henni ljóst að hún þyrfti líklegast að vera á lyfinu til æviloka. Hún ákvað að byrja aftur í samráði við eiginmann sinn.

Niðurstöður nýrrar langtímarannsóknar á vegum Oxford-háskóla sýna að það sé líklegt að einstaklingar sem hætta notkun á þyngdarstjórnunarlyfi, eins og Ozempic, muni þyngjast aftur, og hraðar en áður.

Sjá einnig: Hvað gerist í líkamanum ári eftir að manneskja hættir á Ozempic? – Niðurstöður rannsóknar skellur fyrir notendur

Susan Jebb, aðalhöfundur rannsóknarinnar, sagði:

„Þessi lyf eru mjög áhrifarík til þyngdartaps, en þyngdin kemur aftur mun hraðar til baka þegar þú hættir á lyfjunum, hraðar en eftir hefðbundna megrun. Við verðum að spyrja okkur hvort það sé þess virði fyrir NHS (breska heilbrigðiskerfið) að fjárfesta í þessum lyfjum ef fólk tekur þau aðeins í stuttan tíma og bætir svo öllu aftur á sig.“

Jebb lagði áherslu á að annað hvort þyrfti fólk að samþykkja að þetta væri ævilöng meðferð, það er, að það þyrfti að vera á lyfjunum alla ævi, eða að vísindasamfélagið þyrfti að þróa betri leiðir til að styðja fólk eftir að lyfjameðferð lýkur. „Við þurfum að hugsa mjög vel hvernig við getum stutt einstaklinga þegar þeir hætta á lyfinu.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Í gær

Þrjú atriði sem þykja eðlileg hér en furðuleg víða annars staðar – Guðni bara Guðni

Þrjú atriði sem þykja eðlileg hér en furðuleg víða annars staðar – Guðni bara Guðni
Fókus
Í gær

„Refsarinn“ lýsir kynlífspartíum Diddy – Leiðbeindi honum hvernig hann átti að bera sig að með Cassie

„Refsarinn“ lýsir kynlífspartíum Diddy – Leiðbeindi honum hvernig hann átti að bera sig að með Cassie
Fókus
Í gær

George Wendt er látinn – Lék Norm í Staupasteini

George Wendt er látinn – Lék Norm í Staupasteini
Fókus
Fyrir 2 dögum

Bjarnheiður svarar Jónasi Sen fullum hálsi og segir hann „baðaðan í snobbi þess, sem telur sig hærra settan“

Bjarnheiður svarar Jónasi Sen fullum hálsi og segir hann „baðaðan í snobbi þess, sem telur sig hærra settan“
Fókus
Fyrir 2 dögum

Rosaleg breyting á Kris Jenner: Virðist hafa yngst um meira en 20 ár

Rosaleg breyting á Kris Jenner: Virðist hafa yngst um meira en 20 ár
Fókus
Fyrir 2 dögum

Nýjar myndir af stjörnunni hneyksla: Aðdáendur í áfalli og vinir hennar sagðir mjög áhyggjufullir

Nýjar myndir af stjörnunni hneyksla: Aðdáendur í áfalli og vinir hennar sagðir mjög áhyggjufullir
Fókus
Fyrir 3 dögum

Afhjúpar 30 ára fjölskylduleyndarmál – Erfitt „að vita að ég hafi lifað í lygi alla mína ævi“

Afhjúpar 30 ára fjölskylduleyndarmál – Erfitt „að vita að ég hafi lifað í lygi alla mína ævi“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Jónas hraunar yfir kórtónleika í Hörpu: „Maður gat ekki betur séð en að þetta væru náttbuxur úr Joe Boxer“

Jónas hraunar yfir kórtónleika í Hörpu: „Maður gat ekki betur séð en að þetta væru náttbuxur úr Joe Boxer“