Viðtal við stórstjörnuna Clint Eastwood vakti mikla athygli á dögunum. Þar gagnrýndi leikstjórinn kvikmyndabransann og sagði hann hafa tapað öllum frumleika sem endurspeglaðist í sífelldum endurgerðum og framhaldsmyndum. Austurríski fjölmiðillinn Kurier kynnti viðtalið sem einkaviðtal í tilefni 95 ára afmælis stjörnunnar og fjölmargir miðlar unnu fréttir upp úr viðtalinu um meinta óbeit leikstjórans á bransanum. Hins vegar kom á daginn að þetta viðtal átti sér aldrei stað. Eastwood sendi frá sér yfirlýsingu þar sem hann sagði viðtalið falsfrétt sem væri uppspuni frá rótum. Blaðamaðurinn á bak við meinta viðtalið, Elisabeth Sereda, segist þó höfð fyrir rangri sök. Hún hafi vissulega haft rétt eftir leikstjóranum þó að hún gangist við því að hafa ekki tekið við hann formlegt viðtal. Svo hvað gerðist í raun og veru?
Sereda segir að austurríski miðillinn hafi haft samband við sig og beðið hana að skrifa grein í tilefni 95 ára afmælis Eastwoods. Hún hafi mætt á fjölda viðburða með leikstjóranum þar sem hann bauð blaðamönnum að spyrja sig spjörunum úr. Hún hafi hreinlega tekið saman tilvitnanir frá þessum fundum. Þar með hafi hún ekki verið að skálda tilvitnanirnar þó að hún hafi ekki tekið eiginlegt viðtal við leikstjórann.
Ritstjóri Kurier segir að tilvitnanirnar hafi komið frá 18 ólíkum blaðamannafundum sem Sereda hafi verið viðstödd. Hins vegar hafi verið rangt af henni að kynna þessa samantekt sem einkaviðtal. Því hefur Kurier ákveðið að vinna ekki aftur með blaðamanninum enda hafi þessi framsetning ekki verið í samræmi við ritstjórnarstefnu miðilsins.
Sereda er austurrísk en búsett í Bandaríkjunum. Hún hefur skrifað mikið um kvikmyndaiðnaðinn. Undanfarna mánuði hefur Kurier birt viðtöl eftir hana við stjörnur á borð við Pamelu Anderson, Sarah Jessica Parker og Jude Law. Nú hafa spurningar vaknað um hvort að þessi viðtöl hafi í raun og veru átt sér stað. The Guardian ræddi við heimildarmann sem þekkir til Jude Law en sá sagði að leikarinn hafi aldrei mætt í viðtal til Sereda. Hún hafi hins vegar verið viðstödd blaðamannafund á kvikmyndahátíð í Torontu á síðasta ári en þar var Law að kynna kvikmyndina Eden. Meinta viðtalið hafi byggt á þessum blaðamannafundi.
Eastwood sagði í yfirlýsingu vegna málsins: „Ég tel rétt að koma nokkrum atriðum á hreint. Ég get staðfest að ég hef fagnað 95 ára afmæli mínu. Ég get líka staðfest að ég hef aldrei mætt í viðtal til austurríska miðilsins Kurier eða til nokkurs annars miðils undanfarnar vikur, svo þetta viðtal er hreinn uppspuni.“