fbpx
Þriðjudagur 16.desember 2025
Fókus

Mest taugatrekkjandi Eurovision-kvöldi til margra ára er lokið með sigri Austurríkis

Fókus
Laugardaginn 17. maí 2025 23:04

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Austurríki sigraði Eurovision í ár með lagið Wasted Love, og hafði þar með betur gegn Ísrael sem var í 2. sæti, en líklega er óþarfi að rekja hvers vegna mögulegur sigur Ísrael fór fyrir brjóstið á fólki.

Þetta er fyrsta keppnin í mörg ár þar sem þessi blaðamaður vissi bara ekkert hvað var í gangi í stigagjöfinni og af athugasemdum á samfélagsmiðlum að dæma eru margir á á sama máli.

Dómnefnd og almenningur kusu eins og verur á sitt hvorri plánetunni og í raun verður það líklega umræðuefni næsta árið hvernig stigin féllu í þessari keppni og hvort það hafi í raun endurspeglað hvað þjóðinni fannst um flutninginn og lögin sjálf.

Á útsendingu RÚV mátti heyra Gunnu Dís og Gunnar Birgisson vera hreinlega orðlaus yfir þeim vendingum sem áttu sér stað í kvöld.

Ó, já rétt að taka fram að Ísland endaði í næstsíðasta sæti. En vorum samt ofar en gaurinn sem gerði lagið Blue dabadee, sem er eitthvað.

 


 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

„Hann pikkaði mig upp á bar með línunni: Hef ég séð þig áður?“

„Hann pikkaði mig upp á bar með línunni: Hef ég séð þig áður?“
Fókus
Fyrir 2 dögum

Ný rannsókn bendir til heilsufarsáhættu af húðflúrum – Blekið gerir ónæmiskerfinu engan greiða

Ný rannsókn bendir til heilsufarsáhættu af húðflúrum – Blekið gerir ónæmiskerfinu engan greiða
Fókus
Fyrir 3 dögum

Bókinni ætlað að kynna börn fyrir veiði og gefa skjánum frí

Bókinni ætlað að kynna börn fyrir veiði og gefa skjánum frí
Fókus
Fyrir 3 dögum

Líkaminn setti Önnu í skammarkrók – „Svo slæmt að ég komst ekki fram úr rúminu“

Líkaminn setti Önnu í skammarkrók – „Svo slæmt að ég komst ekki fram úr rúminu“