fbpx
Mánudagur 06.maí 2024
Fókus

Segja þessa fæðu ekkert hafa með íslenska karlmennsku að gera – „Ertu maður eða mús?“

Fókus
Föstudaginn 26. apríl 2024 09:29

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Dögg Guðmundsdóttir og Guðrún Nanna Egilsdóttir, meistaranemar í næringarfræði, blása á algengar mýtur um soja og karlmennsku í pistli á Vísi.

Pistilinn hefur vakið talsverða athygli og ber yfirskriftina: „Er soja að eyðileggja íslenska karlmennsku?“

„Soja er matvæli sem hefur verið töluvert umdeilt og mikið rætt á sviði næringar en um er að ræða einstakt matvæli sem hefur verið ansi vel rannsakað. Rannsóknir sýna fram á að soja hafi ýmist jákvæð eða hlutlaus áhrif á ýmsar heilsufarslegar útkomur. Þrátt fyrir það hefur þessi ágæta fæða ekki verið örugg fyrir háværum og ósanngjörnum mýtum sem virðast seint ætla að deyja út. Raunin er sú að soja er mjög næringarríkt matvæli sem hefur að geyma mikilvæg prótein. Soja er eitt af fáum plöntupróteinum sem að inniheldur allar 9 lífsnauðsynlegu amínósýrurnar í þeim hlutföllum sem við þörfnumst eins og dýraprótein. Það er auk þess ríkt af kalki, magnesíum, trefjum og inniheldur járn og sink. Fyrir flesta er því um að ræða næringaríka fæðu og líklegt til að hafa heilsufarslegan ávinning, sé ekki óþol til staðar,“ skrifa Dögg og Guðrún Nanna.

Í greininni fara þær yfir nokkrar algengar mýtur og leiðrétta þær.

„Ýmsar mýtur hafa verið í gangi um soja í gegnum tíðina og margar af þeim mýtum byggja á gömlum rannsóknum á dýrum. Mikilvægt er að hafa í huga að ferlar mannslíkamans virka oft allt öðruvísi en hjá dýrum og endurspegla því dýrarannsóknir ekki hvaða ferlar eiga sér stað í mönnum. Svo spurningin er, ertu maður eða mús?“

Ein vinsælasta mýtan er: „Soja veldur kvenlegum eiginleikum hjá körlum.“

„Þessi mýta er mjög algeng og ætlar greinilega að vera svolítið langlíf og þrjósk. Hún hefur meira að segja gengið svo langt að á netmiðlum varð nýlega til hugtakið „soy boys“, þá sem einhverskonar móðgun gagnvart „kvenlegum mönnum“, þá þvert á hinn steríótýpíska karlmann sem elskar vel blóðuga steik sem próteingjafa. Þessi vinsæla mýta byggir á því að soja inniheldur svokallað plöntu estrógen. Byggingin á plöntu estrógeninu er svipuð og á estrógeni sem er hormón í mannslíkamanum en það hegðar sér ekki á sama hátt í líkamanum. Plöntu estrógenið bindst ekki eins sterkt við estrógen viðtaka og hefur því ekki áhrif á estrógen framleiðslu í líkamanum. Soja hefur því ekki áhrif á framleiðslu estrógens og veldur ekki kvenlegum eiginleikum. Berist mýtan til tals hvetjum við eindregið til að hún sé leiðrétt, líklegt þykir að sá hinn sami verði talinn klárari fyrir vikið.“

Önnur algeng mýta er að: „Soja eykur líkur á brjóstakrabbameini.“

Við því segja Dögg og Guðrún Nanna: „Þessi er áhugaverð því að rannsóknir sýna einmitt þvert á móti vísbendingar um að soja hafi mögulega verndandi áhrif þegar kemur að brjóstakrabbameini og jafnvel krabbameini í blöðruhálskirtli hjá körlum. Neysla á soja getur mögulega dregið úr hættu á brjóstakrabbameini vegna þess að í sumum vefjum geta plöntu estrógen hindrað verkun estrógens en estrógen örvar vöxt og fjölgun brjósta- og brjóstakrabbameinsfrumna. Þó skal hafa í huga að einungis sumar rannsóknir hafa sýnt ávinning af sojaneyslu í tengslum við brjóstakrabbamein á meðan aðrar sýna engin tengsl, hvorki jákvæð né neikvæð.“

Þriðja mýtan sem þær leiðrétta er: „Soja hefur neikvæð áhrif á umhverfið.“

„Í dag er það svo að stærsti hluti sojaræktunar fer í fóður fyrir eldisdýr en einungis lítið hlutfall af því er borðað af okkur. Gríðarlega stórt hlutfall þess fer í fóður fyrir eldisdýr en 77% af soja í heiminum er notað í fóður fyrir búfé til kjöt- og mjólkurframleiðslu og aðeins 7% af soja er notað í matvæli eins og tofu, sojamjólk, edamame baunir og tempeh. Sá misskilningur að soja matvæli sem mannfólk neytir valdi eyðingu skóga er því algjör misskilningur. Með því að sleppa þessum millilið sem kjötið er og velja frekar soja matvæli til að borða er þvert á móti verið að hafa jákvæð áhrif á umhverfið.“

Í pistlinum, sem má lesa hér, fara þær yfir aðra mýtu um soja og skjaldkirtilinn.

Mæla með að prófa að skella tófú á grillið í sumar

„Til að draga saman þá er soja almennt mjög næringarríkt matvæli sem flestir hefðu ávinning af að bæta inn í mataræðið sé ekki óþol eða skjaldkirtilssjúkdómur til staðar. Það inniheldur ótal mörg nauðsynleg næringarefni fyrir okkur, er þar að auki ódýr próteingjafi og hægt að elda úr fjölbreytta og gómsæta rétti. Við hvetjum því eindregið til að víkka sjóndeildarhringinn og reyna fyrir sér með soja í matargerð,“ segja Dögg og Guðrún Nanna.

„Nú ef við höfum áhyggjur af karlmennsku þá er kannski ekkert karlmannlegra en umhverfisvænt og næringarríkt marinerað tófú á grillið í sumar? Athugið að hér er ekki verið að tala um að sleppa alfarið steikum heldur prófa sig áfram með ný hráefni, fjölbreytni í mataræði er alltaf jákvætt heilsunni.“

Hægt er að fá meiri fróðleik á Instagram hjá @naeringogjafnvaegi og @dogg.gudmunds.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Í gær

Alexandra Helga og Gylfi eiga von á öðru barni

Alexandra Helga og Gylfi eiga von á öðru barni
Fókus
Í gær

Svona líta svíturnar í skemmtiferðaskipunum út – Skópússun og einkabrytar

Svona líta svíturnar í skemmtiferðaskipunum út – Skópússun og einkabrytar
Fókus
Fyrir 3 dögum

Sjónvarpssería um ævintýralegan feril Jósafats Arngrímssonar

Sjónvarpssería um ævintýralegan feril Jósafats Arngrímssonar
Fókus
Fyrir 3 dögum

Katrín og Vilhjálmur að „ganga í gegnum helvíti“

Katrín og Vilhjálmur að „ganga í gegnum helvíti“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Hin raunverulega Martha úr Baby Reindeer hótar Stephen King

Hin raunverulega Martha úr Baby Reindeer hótar Stephen King
Fókus
Fyrir 4 dögum

„Ég geri mér 100 prósent grein fyrir því hvernig ég lít út“

„Ég geri mér 100 prósent grein fyrir því hvernig ég lít út“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Gypsy Rose frumsýndi nýtt nef og ljóst hár eftir fegrunaraðgerð

Gypsy Rose frumsýndi nýtt nef og ljóst hár eftir fegrunaraðgerð
Fókus
Fyrir 4 dögum

Manowar halda tónleika á Íslandi – Eitt af stærstu þungarokksböndum sögunnar

Manowar halda tónleika á Íslandi – Eitt af stærstu þungarokksböndum sögunnar