Poetrix, sem er listamannsnafn Sævars Kolandavelu, hefur sent frá sér plötuna „Biluð plata“ en í spilaranum hér að neðan má hlýða á lagið „Fyrir alla“ af plötunni.
Um leið og Poetrix færir almenningi þessa tónlist vill hann vekja athygli á fjársöfnun til styrktar Sævari sem hefur glímt við mjög erfið veikindi undanfarin ár. Um er að ræða króníska gigt og hryggskaða. Sjúkdómurinn er flókinn en fjallað var um málið í viðtali á mbl.is í fyrra. Þar segir meðal annars:
„Vandinn er í raun margþættur en það er líklegt að hryggurinn sé laus frá mjöðminni. Ég hef verið með skekkju í fæti frá fæðingu. Við erum að reyna að stuðla að samtali við fólk í heilbrigðiskerfinu. Í verkferlunum sjálfum virðast ekki vera lausnir fyrir fólk og það er eins og þeir séu ekki búnir til fyrir fólk. En ég er viss um að starfsfólkið sé persónulega með okkur í liði. Möguleikarnir sem standa starfsfólki til boða til að sinna sjúklingum í heilbrigðiskerfinu eru takmarkaðir miðað við mína reynslu. Við gerum ekki endilega ráð fyrir því að læknarnir hafi aðstöðu, þekkingu eða tíma til að ljúka málinu þar sem þetta er margþætt. Ég veit ekki hvort umhverfið og aðstaðan sé til staðar til að framkvæma aðgerðir sem líklega eru nauðsynlegar í mínu tilviki. Í versta falli mun ég reyna að fara til Indlands og vinna með lækni þar sem er mjög framarlega í sínu fagi. En tíminn líður og við þurfum að koma þessu í betri farveg. Það sést bara á mér að ég er í tætlum.“
Verkefnið til styrktar Sævari ber heitið Thugmonk og má nánar lesa um það hér og veita því stuðning.
Síðan er um að gera að njóta hressilegrar tónlistar í spilaranum hér að neðan: