fbpx
Mánudagur 15.desember 2025
Fókus

Þetta er það sem Joe Jonas heyrði Sophie Turner segja á alræmdu upptökunni

Guðrún Ósk Guðjónsdóttir
Fimmtudaginn 28. september 2023 09:19

Joe Jonas og Sophie Turner.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Tónlistarmaðurinn Joe Jonas og leikkonan Sophie Turner eru að skilja eftir fjögurra ára hjónaband. Þau eiga tvær dætur saman.

Skilnaðurinn er orðinn ansi ljótur, fjölmiðlar hafa fjallað mikið um málið og hefur leikkonan stefnt söngvaranum.

Sjá einnig: Nýjasta skilnaðardramað í Hollywood harðnar – Frétti af fyrirhuguðum skilnaði í gegnum slúðurmiðla og stefnir söngvaranum

Samkvæmt gögnum sem leikkonan hefur lagt fram fyrir dómi mun málið eiga rætur að rekja til rifrildis sem hjónin áttu á afmælisdegi söngvarans um miðjan ágúst.

Í byrjun september greindi slúðurmiðillinn TMZ frá því að upptaka úr Ring öryggismyndavél á heimili þeirra hafi verið hvatinn á bak við skilnaðinn.

Sjá einnig: Upptaka úr öryggismyndavél sögð vera hvatinn á bak við skilnaðinn

TMZ sagðist hafa rætt við nokkra heimildamenn, sem eiga allir að þekkja Joe, sem segja að söngvarinn hafi annað hvort „heyrt eða séð eitthvað“ á upptöku úr öryggismyndavélinni sem hafi látið hann átta sig á því að hjónabandið væri búið. Smáatriðin eru ekki á hreinu að sögn miðilsins.

Nú greinir US Weekly frá því hvað það hafi verið sem Joe átti að hafa heyrt.

Samkvæmt heimildarmanni miðilsins á Joe að hafa heyrt Sophie tala illa um sig.

„Það var ekkert meira en það. En það var síðasta hálmstráið,“ sagði hann.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

Bókinni ætlað að kynna börn fyrir veiði og gefa skjánum frí

Bókinni ætlað að kynna börn fyrir veiði og gefa skjánum frí
Fókus
Fyrir 2 dögum

Líkaminn setti Önnu í skammarkrók – „Svo slæmt að ég komst ekki fram úr rúminu“

Líkaminn setti Önnu í skammarkrók – „Svo slæmt að ég komst ekki fram úr rúminu“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Myndband af grínistanum í annarlegu ástandi vekur óhug

Myndband af grínistanum í annarlegu ástandi vekur óhug
Fókus
Fyrir 4 dögum

Neitar að biðjast afsökunar á ummælum sínum um Charlie Kirk

Neitar að biðjast afsökunar á ummælum sínum um Charlie Kirk