fbpx
Fimmtudagur 19.mars 2026
Fókus

Myndband sem sýnir handtöku TikTok-stjörnu eftir að hún kastaði stól í kærasta sinn og 5 ára dóttur

Guðrún Ósk Guðjónsdóttir
Mánudaginn 3. apríl 2023 19:29

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

TikTok-stjarnan Taylor Frankie Paul var handtekin í Salt Lake City í febrúar. DailyMail birti myndband úr búkmyndavél lögreglunnar en þar má sjá Taylor mjög ölvaða og í miklu uppnámi.

Taylor var handtekin fyrir að kasta stól í kærasta sinn, Dakota Mortensen, en stóllinn hæfði einnig fimm ára dóttur hennar.

Taylor er mormóni og vinsæl á TikTok. Hún vakti mikla athygli í fyrra þegar hún greindi frá því á miðlinum að hún og eiginmaður hennar væru að skilja eftir að hún „gekk of langt“ á „soft-swing“ kvöldi. „Soft-swing“ eða „mjúk makaskipti“ er þegar pör skiptast á mökum en stunda ekki samfarir.

Myndband/Lögreglan í Salt Lake City/Daily Mail

Þann 17. febrúar var Taylor handtekin. Í myndbandinu sem DailyMail birtir kemur fram að Taylor hafi orðið brjáluð þegar Dakota neitaði að fara með henni á tónleika á þeim forsendum að hún væri of ölvuð. Þá hafi Taylor „misst vitið“ og kastað stólum í kærasta sinn, einn þeirra fór óvart í höfuðið á fimm ára dóttur hennar.

Eftir að lögreglan mætti á vettvang sagði Taylor að hún hafi „verið svo hrædd að ég pissaði á mig.“

Hún sagði að Dakota hefði ýtt henni fyrst og hún hafi varið sig með því að kasta stólum í hann. Taylor er 27 ára og Dakota 30 ára.

Ákærur í nokkrum liðum

Taylor var í upphafi handtekin fyrir smávæglegar sakir en eftir að Dakota sýndi lögreglu myndband úr síma hans, þar sem Taylor sást kasta stól í dóttur sína, var áhrifavaldurinn ákærður fyrir stórfellda líkamsárás, heimilisofbeldi í viðurvist barns og ofbeldi gegn barni.

Tveimur vikum síðar gaf héraðssaksóknari í Salt Lake sýslu út ákæru á hendur Taylor. Tveir ákæruliðanan varða þriðja stigs heimilisofbeldi í viðurvist barns sem leiddi til áverka.

Ef hún verður fundin sek gæti hún átt yfir höfði sér allt að fimm ára fangelsi. Hún mætir fyrir dóm þann 14. apríl næstkomandi.

Taylor er með rúmlega fjórar milljónir fylgjenda á TikTok. Hún deilir þar daglegu lífi sínu með fylgjendum. Hún á tvö börn með fyrrverandi eiginmanni sínum.

Hún hneykslaði fylgjendur sína síðasta sumar þegar hún sagði að hún og þáverandi eiginmaður hennar, Tate, væru að skilja því hún hafi gengið of langt á „soft-swingin“ viðburði.

Taylor og Dakota. Mynd/Instagram

Fyrir um hálfu ári síðan byrjaði hún með Dakota Mortensen.

Greint er frá því að Taylor og Dakota séu enn saman og séu að „vinna í sambandinu.“ Hún hefur birt nokkrar færslur á samfélagsmiðlum og sagðist ekki ætla að birta myndir eða myndbönd af börnunum sínum á netinu, en það sé tímabundið ástand. Hún hefur hins vegar ekki tjáð sig um ákæruna opinberlega.

DailyMail fjallar nánar um málið.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

Sandra og Heimir selja í Hveragerði og flytja sig um set

Sandra og Heimir selja í Hveragerði og flytja sig um set
Fókus
Fyrir 2 dögum

Skúffuð yfir að önnur heiðraði minningu Robert Redford -„Ég hef meira að segja“

Skúffuð yfir að önnur heiðraði minningu Robert Redford -„Ég hef meira að segja“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Drykkurinn „Irish carbomb“ sagður vera svívirða

Drykkurinn „Irish carbomb“ sagður vera svívirða
Fókus
Fyrir 4 dögum

Adam Sandler sendir hinni barnlausu Jennifer Aniston blóm á hverjum mæðradegi

Adam Sandler sendir hinni barnlausu Jennifer Aniston blóm á hverjum mæðradegi