Eignin er 157,6 fermetrar að stærð og ásett verð er 96,9 milljónir. Húsið er álklætt með lyftu og var byggt árið 2020. Íbúðin sjálf er 144,5 fermetrar og sérgeymsla í kjallara er 13,1 fermetrar.
Það eru fjögur rúmgóð svefnherbergi og tvö baðherbergi í íbúðinni, þar að auki fylgir stæði í lokaðri bílageymslu eigninni.
Það eru stórar svalir, 19 fermetrar, með svalalokun og er staðsetningin frábær. Stutt er í grunnskóla, leikskóla og helstu þjónustu.
Hægt er að lesa nánar um eignina og skoða fleiri myndir á fasteignavef DV.