Leikarinn Jeremy Renner lenti í hrottalegu slysi á nýársdag þegar snjóbíll rann yfir hann. Í slysinu brotnuðu rúmlega 30 bein og hann missti mikið blóð.
Nú greinir DailyMail frá því að framtíð Renner í Hollywood sé nú í uppnámi, en samkvæmt heimildarmönnum líti Renner svo á að ferill hann sé ekki lengur forgangsatriði í lífinu.
„Þó hann elski enn að leika þá er Hollywood ekki í forgangi hjá honum lengur“
Heimildarmaðurinn, sem er sagður hafa nýlega varið tíma með Rennar, segir að Renner trúi því að hann hafi lifað til að geta notað rödd sína og vettvang til að gera heiminn betri.
„Hann er mjög stoltur af því sem hann hefur gert, en þessar aðstæður hafa sýnt honum að það er svo mikið meira sem hann gæti verið að gera til að hjálpa öðrum.“
Renner er ekki lengur á sjúkrahúsi heldur er kominn aftur heim til sín í Los Angeles. Þar einbeitir hann sér að því að gróa sára sinna.
Heimildarmaðurinn segir að móðir Renner, Valerie, hafi verið honum ómetanlegur stuðningur og varla vikið frá honum.
„Mamma hans er með honum flestar helgar og líka dóttir hans Ava. Hann einbeitir sér nú bara að batanum og er í endurhæfingu til að læra að ganga aftur. Jeremy veit að hann er mjög heppinn að vera á lífi. Hver dagur er betri en sá fyrri og hann er klárlega að taka framförum, en þær eru þó hægar.“