fbpx
Fimmtudagur 12.desember 2024
Fókus

„Þegar MeToo byltingin byrjaði, fór ég að skoða sjálfan mig“

Ragna Gestsdóttir
Föstudaginn 10. febrúar 2023 19:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Þegar MeToo byltingin byrjaði, fór ég að skoða sjálfan mig,“ segir Gunnar, sem þekktur er sem tónlistarmaðurinn Major Pink. Hann bætir því að byltingin sjálf hafi hreyft við mörgum karlmönnum. 

„Þetta er það góða við MeToo byltinguna, við erum ansi margir sem fórum að gera það,“ segir Gunnar og bætir því við að sjálfsskoðunin hafi leitt ófáum karlmönnum eigin hlut í neikvæðum aðstæðum fyrir sjónir. „Þó allt of fáir karlmenn hafi viljað tala opinberlega um málið eða hafi viðurkennt sinn hlut. Ég vil vekja athygli á þessu og hvetja fleiri karlmenn til að tala upphátt um þessa hluti.“

Gunnar hefur vakið athygli fyrir sinn einstaka tónlistarstíl ásamt sinni djúpu og ljóðrænu nálgun á textaskrif. Síðustu mánuði hefur Gunnar tekið eftir miklu umtali um ofbeldi karlmanna sem hefur leitt til þess að enn fleiri konur stíga fram og segja frá sinni reynslu með það markmið að varpa ljósi á málefnið til að stöðva ofbeldisfulla hegðun.

„Með textanum, sem fjallar um þá verstu af mínu kyni, er ég að gera mitt besta til að þroskast og læra að skilja hvað fórnarlömb kynbundins ofbeldis ganga í gegnum,“ segir Gunnar um texta í nýju lagi sínu, Love Me Loud, en textinn fjallar um þrjár erkitýpur karlmanna sem beita konur ofbeldi.


Ásamt því að endurspegla sig í sinni fortíð þar sem Gunnar segist sjálfur ekki hafa alltaf vitað sín mörk eða hagað sér á óviðeigandi hátt en segist þó aldrei hafa viljandi sært aðra og sé hann maður með gott hjarta og er því ánægður að sjá fræðsluna sem nú er verið að kenna ungum mönnum og  mönnum á öllum aldri um hver mörkin eru, hvað sé í lagi og hvað ekki.

Fylgja má Gunnari á Facebook og  Instagram.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Í gær

Hulin ráðgáta hvenær Jay-Z og Beyoncé byrjuðu saman – Var upphafið óviðeigandi?

Hulin ráðgáta hvenær Jay-Z og Beyoncé byrjuðu saman – Var upphafið óviðeigandi?
Fókus
Í gær

Dóri DNA selur glæsilega íbúð í Skerjafirðinum

Dóri DNA selur glæsilega íbúð í Skerjafirðinum
Fókus
Fyrir 2 dögum

Jay-Z neitar að hafa nauðgað 13 ára barni – „Ég mun ekki gefa þér krónu með gati“

Jay-Z neitar að hafa nauðgað 13 ára barni – „Ég mun ekki gefa þér krónu með gati“
Fókus
Fyrir 2 dögum

Fitness áhrifavaldur tók æfingu í miðju flugi – „Hún ber enga virðingu fyrir öðrum“

Fitness áhrifavaldur tók æfingu í miðju flugi – „Hún ber enga virðingu fyrir öðrum“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Vikan á Instagram – Sjóðandi heitur desember

Vikan á Instagram – Sjóðandi heitur desember
Fókus
Fyrir 3 dögum

„Það er of mikil áhersla lögð á að fá einhverja einkunn á prófi en gleymist að það gengur ekki upp ef börnum líður illa“

„Það er of mikil áhersla lögð á að fá einhverja einkunn á prófi en gleymist að það gengur ekki upp ef börnum líður illa“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Hildur Líf fann sig aftur eftir erfiðan skilnað og blómstraði – „Ég tók áhættu að segja skilið við fyrra líf mitt fyrir frelsi og öryggi“

Hildur Líf fann sig aftur eftir erfiðan skilnað og blómstraði – „Ég tók áhættu að segja skilið við fyrra líf mitt fyrir frelsi og öryggi“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Íslendingar nefna jólakvikmyndirnar sínar – „Árið 2010 horfði ég á hana og var þá að bíða eftir því að dóttir mín fæddist, sem hún svo gerði á aðfangadag“

Íslendingar nefna jólakvikmyndirnar sínar – „Árið 2010 horfði ég á hana og var þá að bíða eftir því að dóttir mín fæddist, sem hún svo gerði á aðfangadag“