Karl III Bretlandskonungur tók formlega við krúnunni á laugardag í sérstakri arftökuathöfn í St. James höllinni í London á laugardag. Hann hefur þó verið konungur Bretlands allt frá því að móðir hans, Elísabet II, lét lífið á fimmtudag.
Á athöfninni náðist hann á mynd reiðilega skipa aðstoðarfólki sínu að taka til á skrifborðinu sem hann sat við að skrifa undir pappíra, rétt áður en til kom að hann færi með ávarp sitt. Myndbandið hefur gert allt vitlaust á samfélagsmiðlum.
Myndbandið virðist sýna hvar Karl notar hendurnar til að gefa aðstoðarfólki sínu til kynna að það þurfi að taka til á skrifborðinu og fjarlægja þaðan hluti. Netverjar hafa bent á að Karl er, að þeim vitandi, með tvær hendur og hefði sjálfur getað fært til hlutina.
"The servant must clear my desk for me. I can't be expected to move things." pic.twitter.com/0pZqY2Xopq
— Laura Kuenssberg Translator (@BBCLauraKT) September 10, 2022
Hlutirnir á borðinu var blek sem hann fékk frá sonum sínum Vilhjálmi og Harry Bretlandsprinsum við athöfnina.
Annað myndband gengur líka manna milli þar sem Karl er að skrifa undir pappíra. Þar má sjá hvar Karl virðist eiga erfitt með að koma pappírnum fyrir á borðinu og svo gnísta tönnum og benda aðstoðarfólki sínu á að fjarlægja hluti.
That look on Charles' face … what, somebody was supposed to pick up the pen case? #KingCharles #KingCharleslll – I didn't see William or Camilla make that face! pic.twitter.com/B6Ij8EkRhR
— Kriss (@KrissKrypto) September 11, 2022
Bæði þessi myndbönd hafa vakið harða gagnrýni á fyrsta konunginn sem ríkt hefur yfir Bretlandi í 70 ár, en þau þykja bera merki um hroka konungsins.
Engu að síður má velta upp þeirri spurningu hvort að konungurinn hafi ekki hreinlega verið stressaður. Móðir hans skildi eftir stóra kórónu til að fylla enda elskuð og dáð af þjóð sinni áratugum saman og hafði fylgt Bretlandi inn á tækniöldina í gegnum stríð og miklar samfélagsbreytingar. Hún ríkti svo lengi að hún var orðin tákn Bretlandsþjóðarinnar og upplifa sig margir í eins konar krísu. Til að mynda er þjóðsöngur Breta lagið God save the queen, sem nú þarf að breyta í god save the king.
Þjóðarsorg ríkir enn í Bretlandi en Elísabet verður jörðuð þann 19. september.
Karl hefur þrátt fyrir ofangreinda gagnrýni þó verið talinn hringja inn nýja tíma en hann hefur verið ögn meira í takt við tíðarandan í gegnum árin heldur en móðir hans og mátti bera þess merki af fyrsta ávarpi hans til breska sambandsríkisins þegar hann talaði fyrst og fremst um að þjóna þjóð sinni.
Það hljóta að vera nokkur viðbrigði fyrir konunginn að vera samtímis að syrgja móður sína og taka við þeirri þjóðhöfðingjastöðu sem beðið hefur hans öll hans 73 ár.
His Majesty is visibly moved as God Save The King is sung for the first time in his presence. pic.twitter.com/y13scjnamt
— Royal Central (@RoyalCentral) September 12, 2022